Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Embætti sóknarprests í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli laust

IngjaldshólskirkjaBiskup Íslands auglýsir laust til umsóknar embætti sóknarprests í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli, Vesturlandsprófastsdæmi, frá 1. maí 2012.

  • Biskup Íslands skipar í embætti sóknarpresta til fimm ára.
  • Í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli eru tvær sóknir, Ingjaldshólssókn (543 íbúar) og Ólafsvíkursókn (1.035 íbúar). Í hvorri sókn er sóknarkirkja og safnaðarheimili. Auk framangreindra sókna er Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakall á samstarfssvæði með eftirtöldum prestaköllum: Staðastaðarprestakalli, Setbergsprestakalli og Stykkishólmsprestakalli. Prestakallið er í sveitarfélaginu Snæfellsbæ.
  • Um þjónustuskyldur í sóknunum fer eftir samþykktum kirkjuþings um innri málefni kirkjunnar.
  • Prestssetrið og skrifstofa sóknarprests er í Ólafsvík. Sóknarpresti er skylt að sitja prestssetrið og hafa umsjón með því. Fyrir liggur haldsbréf ásamt framkvæmdaáætlun hjá fasteignasviði Biskupsstofu. Sá sem fær embættið undirritar haldsbréfið áður en tekið er við prestssetrinu.
  • Vesturlandsprófastsdæmi er, auk framangreindra prestakalla, myndað af Borgar- , Garða- , Hvanneyrar- , Reykholts- , Saurbæjar- , Stafholts- og Dalaprestaköllum.
  • Óskað er eftir því að umsækjendur geri skriflega grein fyrir persónulegum upplýsingum, menntun sinni, starfsferli, samskiptahæfileikum svo og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram.
  • Óskað er eftir því að umsækjendur heimili aðgang að sakaskrá sinni, en ella er óheimilt að skipa viðkomandi í embættið.
  • Valnefnd velur sóknarprest skv. starfsreglum um val og veitingu prestsembætta nr. 1109/2011 og er stuðst við óháðan ráðgjafa í öllu umsóknarferlinu.
  • Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 15. gr. starfsreglna nr. 1109/2011.
  • Um launakjör fer skv. ákvörðun kjararáðs.
  • Embætti sóknarpresta eru auglýst með fyrirvara um breytingar á sóknar- og prestakallaskipan. Prestum er skylt að hlíta breytingu á störfum sínum og verksviði á skipunartímanum sbr. 19. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
  • Vísað er til laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
  • Um starfið gilda lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 og starfsreglur er kirkjuþing setur. Einkum er vísað til starfsreglna um presta nr. 1110/2011.

Allar nánari upplýsingar um embættið og helstu lög og reglur sem um starfið gilda, eru veittar á Biskupsstofu, s. 528 4000.

Umsóknarfrestur rennur út 15. mars 2012.
Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskupsstofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir