Yfir 30 manns sóttu námskeið Austurlandsprófastsdæmis í samstarfi við Biskupsstofu sl. laugardag, en það var ætlað þeim sem sitja í sóknarnefndum í fjórðungnum. Á námskeiðinu, sem fram fór í Reyðarfjarðarkirkju, var m.a. fjallað um skipulag Þjóðkirkjunnar, ábyrgð og hlutverk sóknarnefnda og helstu starfsreglur þar að lútandi, tæpt á fyrirkomulagi væntanlegs biskupskjörs og rætt um skipan samstarfssvæðanna.
Nánar má lesa um námskeiðið á vef Austurlandsprófastsdæmis.