HUGFLÆÐIFUNDUR um stefnu og framtíð Skálholtsstaðar og Skálholtsskóla verður haldinn n.k. miðvikudag 22. febrúar í Skálholti.
Sr. Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari stýrir fundinum en þátttakendur eru kirkjuráð og starfsfólk ráðsins, fulltrúi skólaráðs Skálholtsskóla, staðarfólk í Skálholti, fulltrúi Prestafélags Suðurlands og starfshópur kirkjuráðs um Skálholt.
Eins og kunnugt er hefur staðið yfir endurskipulagning á starfi Skálholtsskóla og er hugflæðifundurinn hugsaður sem hluti af þeirri vinnu.
