Langholtssöfnuður fagnar 60 ára afmæli á þessu ári. Af því tilefni verður boðið upp á ýmsar uppákomur. Fyrsti viðburðinn verður í messu 26. febrúar. Þá flytur Árni Bergmann rithöfundur, sem búsettur er í Langholtsprestakalli, predikun. Prédikun er glíma við texta Biblíunnar, segir í frétt frá kirkjunni, og tilraun til að túlka og miðla til samtímans, en ein bóka Árna Bergmann heitir einmitt Glíman við Guð. Framundan er svo kvennamessa 18. mars þar sem konur sjá um alla þjónustuna og karlamessa 25. mars þar sem karlar sjá um þjónustuna. Hægt er að fylgjast með viðburðum á síðu Langholtskirkju.
