Æskulýðsfélögin í Reykjavíkurprófastsdæmum standa fyrir góðverkum í Kringlunni á morgun fimmtudag kl. 17 á góðverkadegi ÆSKR. Þar munu félagar selja gjafabréf upp á hænur og geitur sem síðan verða gefnar til fátækra fjölskyldna í Afríku.
En góðverkin verða fleiri. Þannig ætlar nýstofnuð og prúðbúin góðverkasveit ÆSKR að vera fyrir utan Kringluna og hjálpa gömlum konum og körlum og fólki með lítil börn yfir götuna eða að bílum sínum, bera poka fyrir fólk, ganga frá kerrum og gera hvaðeina sem til góðs má verða.
Með þessu góða átaki ætla æskulýðsfélögin að verða að liði í samfélaginu og einnig að styrkja fólk í öðrum heimsálfum í gegnum Hjálparstarf kirkjunnar.
Eftir Góðverkadaginn í Kringlunni ganga félagar fylktu liði frá Kringlunni upp í safnaðarheimili Háteigskirkju þar sem haldin verður ærleg kvöldvaka með tilheyrandi fjöri.