Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Prestvígðar konur fagna fyrsta kvenbiskupi

Jóhanna, Agnes og HalldóraStjórn Félags prestsvígðra kvenna fagnar því að kona hefur í fyrsta skipti verið kosin til að gegna embætti biskups Íslands. Í tilkynningu frá félaginu segir: Við óskum sr. Agnesi Sigurðardóttur hjartanlega til hamingju með kjörið og kirkjunni allri til hamingju með þennan sögulega áfanga.
Í rétt rúma öld hafa konur haft lagalegan rétt til vígðrar þjónustu innan íslensku þjóðkirkjunnar. Þegar frumvarpið um lög um rétt kvenna til embættisnáms, námsstyrks og embætta var til umfjöllunar á hinu háa Alþingi í upphafi 20. aldar vildu nokkrir þingmenn undanskilja biskupsembættið og tryggja þannig körlum einum áframhaldandi rétt til að gegna embætti biskups Íslands. Sem betur fer var það ekki gert. Mörgum úr okkar hópi er farið að lengja mjög eftir því að sjá konu öðlast biskupsvígslu innan kirkjunnar okkar. Allar systurkirkjur okkar á Norðurlöndunum hafa gengið á undan okkur með góðu fordæmi og vígt konur til biskups. Við fögnum mikilvægum áfanga í starfi íslensku þjóðkirkjunnar og hlökkum til samstarfs við nýjan biskup á komandi árum. Ennfremur biðjum við Guð að blessa sr. Agnesi í lífi og starfi.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir