Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Afleysingaþjónusta prests í Lindaprestakalli

Steindur gluggi í safnaðarsal Lindakirkju

Gluggi í safnaðarsal Lindakirkju

Biskup Íslands auglýsir afleysingaþjónustu vegna embættis prests í Lindaprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Um er að ræða tímabundna setningu í embættið, frá 15. september 2012 til loka júlí 2013.

Nánari upplýsingar um prestakallið veitir sóknarpresturinn í Lindaprestakalli, séra Guðmundur Karl Brynjarsson.

  • Umsóknir skulu berast til Biskups Íslands, Laugavegi 31, 150 Reykjavík, fyrir 1. júní n.k.
  • Óskað er eftir því að umsækjendur geri skriflega grein fyrir persónulegum upplýsingum, menntun sinni, starfsferli, samskiptahæfileikum svo og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram. 
  • Umsækjendur heimili aðgang að sakaskrá sinni, en ella er óheimilt að setja viðkomandi í embættið. 
  • Allar nánari upplýsingar um embættið og helstu lög og reglur sem um starfið gilda, eru veittar á Biskupsstofu, s. 528 4000.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir