Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Innritun hafin í sumarbúðir þjóðkirkjunnar við Eiðavatn

Skráning er hafin í sumarbúðir þjóðkirkjunnar við Eiðavatn. Sumarbúðirnar hafa verið starfræktar síðan 1968 og í sumar er þar boðið upp á dvöl barna sem fædd eru á árabilinu 1997 – 2004.

Sumarbúðirnar eru í fallegu umhverfi við Eiðavatn, í u.þ.b. 18 km fjarlægð frá Egilsstöðum. Aðstaðan er öll mjög góð, jafnt inni sem úti. Öryggisbúnaður við bátsferðir er eftir ströngustu kröfum og björgunarvesti á hvert barn. Aðstaða fyrir fatlaða er einnig góð enda er hönnun hússins og umhverfis gerð með aðgengi fatlaðra í huga.

Kirkjulegar sumarbúðir hafa verið á Eiðum síðan sumarið 1968. Framanaf árum í húsnæði barnaskólans en frá 1992 í byggingu Kirkjumiðstöðvarinnar við Eiðavatn sem var vígð 25. ágúst 1991. Kirkjumiðstöð Austurlands er sjálfseignarstofnun á vegum safnaðanna á Austurlandi. Margir eiga góðar minningar úr sumarbúðastarfinu og margháttuð reynsla af slíkri starfsemi hefur orðið til á undanförnum árum.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir