Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Mikilvægt framlag til samfélagsins

Samráðsvettvangur trúfélaga og gestir biskups í maí 2012Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, bauð samráðsvettvangi trúfélaga í Biskupsgarð í vikunni. Með því vildi hann þakka þeim fyrir gott starf á þeim rúmlega fimm árum sem liðin eru frá stofnun vettvangsins. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson og frú Dorrit Moussaieff heiðruðu samkomuna ásamt Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra, og Ragnhildi Hjaltadóttur, ráðuneytisstjóra.

Biskup þakkaði fulltrúum samráðsvettvangsins sérstaklega fyrir framlag þeirra til að efla skilning á þætti trúar í samfélaginu og á mikilvægi samstarfs og góðra samskipta milli trúfélaga. Hann þakkaði einnig forseta fyrir stuðning við starf samráðsvettvangsins og ráðherra fyrir skilning á mikilvægi starfa trúfélaga í samfélaginu.

Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði, þakkaði biskupi fyrir stuðning og hvatningu til þessa starfs. Hann minntist einnig sérstaklega á sameiginlega stund trúfélaga í Hallgrímskirkju árið 2009 þegar Dalaí Lama sótti Ísland heim og þakkaði biskupi það hugrekki að efna til þessarar stundar sem hafi verið einstök og gera með því það sem stjórnvöld treystu sér ekki til að gera.

Hægt er að skoða myndir frá viðburðinum á myndasíðu kirkjunnar.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir