Valnefnd Hjallaprestakalls í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra mælir með því að sr. Sigfús Kristjánsson verði skipaður sóknarprestur í Hjallaprestakalli. Umsóknarfrestur um embættið rann út þann 10. maí síðastliðinn og var sr. Sigfús eini umsækjandinn.
Embættið veitist frá 1. júlí 2012.
Biskup Íslands skipar í embættið að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipuðu níu manns úr prestakallinu ásamt prófasti Reykjavíkurprófastsdæmis eystra.