Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Þriðji frambjóðandinn til vígslubiskupsembættis að Hólum

Frambjóðendur til vígslubiskupsembættisins að Hólum eru orðnir þrír en í dag var tekið á móti framboðstilkynningu sr. Gunnlaugs Garðarssonar sóknarprests í Glerárprestakalli á Akureyri. Má nú gera ráð fyrir að allur póstur stimplaður á lokadegi umsóknarfrests, 30. apríl, hafi borist kjörstjórn og því muni frambjóðendum ekki fjölga frekar. Eru þeir þá þrír: Sr. Gunnlaugur Garðarsson, sr. Kristján Björnsson og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir.

Í tilkynningu frá sr. Gunnlaugi segir:

Um leið og ég undirritaður, Gunnlaugur Garðarsson, sóknarprestur í Glerárprestakalli, Akureyri, bið sr. Agnesi M. Sigurðardóttur Guðs blessunar í þjónustu hennar sem næsti biskup Íslands, kunngeri ég hér með framboð mitt til embættis vígslubiskups Hólastiftis.
Framboð mitt hvílir á knýjandi þrá til að vinna kirkjunni gagn og stuðla að eflingu hennar í tilbeiðslu, boðun og þjónustu. Til þess vil ég bjóða stuðning minn öllum þeim sem það vilja þiggja.

Nánari upplýsingar um sýn mína á kirkjuna, markmið hennar og þjónustu má lesa um á heimasíðu minni www.gunnlaugurgardarsson.com

Í ljósi þess að við lifum tíma umbrota á flestum sviðum tel ég brýnt að við í senn hlúum að kjölfestunni og öllum innviðum um leið og við teygjum okkur fram á við og leitumst við að hafa opinn og breiðan faðm sem samfélag og kirkja.

Til að efla hina biskupslegu hirðisþjónustu kirkjunnar þurfum við að huga að endurskoðun þeirra hlutverka. Býður það verkefni komandi tíðar og er ég bjartsýnn á þá vinnu alla undir forystu nýkjörins biskups Íslands.

Megi valið til biskupsþjónustu Hólastiftis vera í nafni Jesú Krists og Guði falið.
Gunnlaugur Garðarsson

Deila fréttinni


Nýjar fréttir