Atkvæði í vígslubiskupskjöri til Hólastifist verða talin á morgun. Byrjað verður að telja á Dómkirkjuloftinu kl. 14. Er þetta seinni umferð kosninganna og kosið á milli sr. Kristjáns Björnssonar og sr. Solveigar Láru Guðmundsdóttur. Kjörsókn jókst lítillega frá fyrri umferð, var nú 96% á móti 93% í þeirri fyrri. 181 voru á kjörskrá.