Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Embætti héraðsprests í Austurlandsprófastsdæmi laust til umsóknar

Austurlandsprófastsdæmi

Fræðslustarf er mikilvægur hluti af starfi héraðsprests.

Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar embætti héraðsprests í Austurlandsprófastsdæmi frá 1. september 2012. Héraðsprestur þjónar með prófasti og prestum í prófastsdæmum undir stjórn prófasts og annast meðal annars afleysingar og skipuleggur fræðslumál á þjónustusvæði sínu.

• Biskup Íslands skipar í embætti héraðspresta til fimm ára.
• Biskup skipar þann í embætti héraðsprests sem héraðsnefnd mælir með og er stuðst við óháðan ráðgjafa í öllu umsóknarferlinu.
• Í Austurlandsprófastsdæmi eru tíu prestaköll með 27 sóknum. Þar búa rúmlega 10 þúsund manns.
• Embættinu fylgir hvorki prestsbústaður né húsaleigustyrkur. Héraðsnefnd leggur embættinu til starfsaðstöðu á kostnað héraðssjóðs. 
• Um þjónustuskyldur í prófastsdæminu fer eftir samþykktum kirkjuþings um innri málefni kirkjunnar.
• Óskað er eftir því að umsækjendur geri skriflega grein fyrir persónulegum upplýsingum, menntun sinni, starfsferli, samskiptahæfileikum svo og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram.
• Óskað er eftir því að umsækjandi gefi aðgang að sakarskrá sinni með því að fylla út eyðublað sem heimilar biskupi Íslands að aðgang að sakaskrá viðkomandi umsækjenda skv. starfsreglum um presta nr, 1110/2011. Óheimilt er að skipa í embætti héraðspresta án þess að sakarvottorð liggi fyrir. Útfyllt eyðublað, sem er aðgengilegt á vef kirkjunnar, skal fylgja umsókninni.
• Um starfið gilda lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 og starfsreglur er kirkjuþing setur. Einkum er vísað til starfsreglna um presta nr. 1110/2011.
• Um launakjör fer skv. ákvörðun kjararáðs.
• Allar nánari upplýsingar um embættið eru veittar hjá prófasti Austurlandsprófstsdæmis, sr. Davíð Baldurssyni, s. 476-1740 og á Biskupsstofu, s. 528-4000.
• Umsóknarfrestur rennur út 20. ágúst 2012.
• Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskupsstofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.

Prestum er skylt að hlíta breytingu á störfum sínum og verksviði á skipunartímanum sbr. 19. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Vísað er til laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

 

Deila fréttinni


Nýjar fréttir