
Nefndarmenn (f.v.): Barði Ingibjartsson, Kolbrún Guðbrandsdóttir, Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir, sr. Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands, Ásvaldur Magnússon og sr. Fjölnir Ásbjörnsson.
Sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, setti sr. Magnús Erlingsson inn í embætti prófasts Vestfjarðaprófastsdæmis við hátíðlega athöfn í Ísafjarðarkirkju sunnudaginn 15. júlí s.l. Seinna sama dag sat sr. Agnes sinn síðasta fund sem formaður nefndar um Friðarsetrið í Holti en prófastsstarfinu fylgir að vera formaður nefndarinnar. Sr. Magnús Erlingsson nýr prófastur mun því mæta sem formaður og stýra næsta fundi sem áætlaður er innan skamms. Ekki leyndi sér á fundinum að nefndarmenn munu allir sakna fráfarandi formanns sem hefur unnið gott starf fyrir Friðarsetrið frá stofnun þess. Friðarsetrið í Holti er kirkju- og menningarmiðstöð í Önundarfirði sem styður kirkju- og menningarstarfsemi á svæðinu með ýmsum hætti, þar er einnig hægt að kaupa gistingu í fallegu umhverfi á vægu verði.