Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Hlakkar til að þjóna sínu heimafólki

„Ég hefði ekki getað ímyndað mér betri stað né stund heldur en í gær,“ sagði sr. Gunnar Stígur Reynisson, sem var vígður prestsvígslu í Skálholtsdómkirkju í gær. „Ég hlakka til að fara austur og þjóna mínu heimafólki.“

Gunnar Stígur hefur verið skipaður prestur í Bjarnanesprestakalli þar sem hann mun þjóna við hlið sr. Sigurðar Kr. Sigurðssonar, sóknarprests. Gunnar Stígur er frá Höfn í Hornafirði og hann heldur því á heimslóð. Hann sagðist vænta góðs af samstarfinu við sr. Sigurð og þjónustunnar við sóknarbörnin.

Vígsludagurinn er gleðidagur

Vígslan í gær var fyrsta prestsvígsla Agnesar M. Sigurðardóttur, sem tók við embætti biskups Íslands um síðustu mánaðarmót:

„Fyrir tveimur vikum stóð ég hinumegin við altarisgráturnar og var þá algjör þiggjandi, en þarna var ég sú sem leiddi þessa stund. Ég skipti um hlutverk og upplifði það svolítið sterkt að ég hefði skipt um stöðu í lífinu og kirkjunni.“

Agnes sagðist hafa hugsað til sinnar eigin vígslu í gær:

„Ég var sjálf vígð til prests sama ár og Gunnar Stígur fæddist og ég hugsaði óneitanlega til minnar eigin vígslu í gær. Mér finnst það mjög gleðilegt að ungur maður vígist til þjónustu í kirkjunni og það vekur með manni gleði fyrir hans hönd og kirkjunnar.“

Vígsludagurinn var reyndar tímamótadagur í margs konar skilningi. Þetta var í fyrsta sinn sem biskupsvígð kona vígir prest í þjóðkirkjunni. Agnes var sjálf sett inn í embætti prófasts þann 8. júlí 1999. Í gær voru líka liðin 90 ár frá því kona var fyrst kjörin á Alþingi.

Í prédikun sinni lagði Agnes biskup lagði út af lexíu dagsins í Jeremía 1.4-10 og benti vígsluþega, sjálfri sér og öllum viðstöddum meðal annars á að við gerum ekkert í eigin mætti og allra síst þegar við erum prestar. En hinsvegar getum við margt ef við trúum og treystum því að við stöndum ekki ein.

Við athöfnina þjónuðu sr. Axel Árnason, sr. Sigurður Kr. Sigurðsson, sr. Sigurður Grétar Helgason, sr. Halldóra Þorvarðardóttir auk Agnes M. Sigurðardóttur biskups Íslands og sr. Gunnars Stígs Reynissonar. Albert Eymundsson, formaður sóknarnefndar í Hafnarsókn, las ritningarlestra. Organisti var Kristín Jóhannesdóttir. Sönghópurinn Hljómeyki söng í athöfninni.

Axel Árnason og Sigþrúður Jónsdóttir tóku myndirnar sem fylgja fréttinni. Fleiri myndir eru á myndavef þjóðkirkjunnar.

Deila fréttinni


Nýjar fréttir