Kirkjur Íslands

Haukadalskirkja - mynd: Árni Svanur Daníelsson

Það var árið 1996 að Þjóðminjasafn Íslands og Húsafriðunarnefnd ákváðu að ganga til samstarfs um menningarsögulega úttekt á öllum friðuðum kirkjum landsins – 207 að tölu – gripum þeirra og minningarmörkum, þar sem horft væri á efnið frá sjónarhóli byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu, og gefa út í tilefni af 1000 ára afmæli kristn

Kyrrðarstund vegna sjálfsvíga

kertafleyting4.JPG

Í tilefni alþjóðlegs dags sjálfsvígsforvarna verður haldin kyrrðarstund í Dómkirkjunni á föstudaginn 10. september 2010, frá kl. 20:00 – 20:30, á vegum þjóðkirkjunnar, landlæknisembættisins, geðsviðs LSH, Geðhjálpar og Hugarafls. Kyrrðarstundin er til minningar um þá sem fallið hafa fyrir eigin hendi.

Ekki lengur þörf fyrir guð — Guði sé lof!

Dr. Hjalti Hugason, prófessor

Um daginn hafði Fréttablaðið (3. sept.) eftir ofurheilanum Stephen Hawking „að engin þörf sé fyrir guð til að útskýra tilurð heimsins.“ „Guði sé lof!“, var mín fyrsta hugsun. Sjaldan hefur samkrull trúar og náttúruvísinda lukkast vel til lengdar.

Lesa pistilinn á trú.is ...

Í öldudal óvissunnar

Dr. Gunnar Kristjánsson

Málið snýst um hlustandi og túlkandi kirkju sem nýtur trúnaðar fólksins og talar máli þjóðarinnar. Keppikefli þjóðkirkjunnar ætti ekki að vera samband við ríkisvaldið heldur trúnaðarsamband við þjóðina. Sá trúnaður hvílir á gömlum merg og hann þarf að varðveita.

Lesa pistilinn á trú.is ...

Takk

Sr. Sigurður Árni Þórðarson

Nú hefur hópur þolenda miðlað þjóðkirkjunni dýrkeyptri visku. Takk þið hugrökku konur. Ykkur til heiðurs legg ég til að stofnuð verði hetjuverðlaun þjóðkirkjunnar, sem veitt verða kyndilberum sannleikans.

Lesa pistilinn á trú.is ...

Hamingja í morgunmessum

Hafnarfjarðarkirkja

„Morgunmessur hafa verið haldnar í Hafnarfjarðarkirkju í þrjú ár. Í haust ætlum við beina kastljósinu að hamingjunni og því hvernig við getum aukið hana með því að vera á jákvæðum nótum,“ segir sr. Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju.

Aldarminning séra Árelíusar

Sr. Árelíus Níelsson

Þriðjudaginn 7. september eru 100 ár liðin frá fæðingu séra Árelíusar Níelssonar. Aldarafmælisins verður minnst með samkomu í safnaðarheimili Langholtskirkju.

Fjórtándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð

Sunnudagurinn 5. september er fjórtándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Lestrar, bæn og sálmur dagsins eru aðgengileg á vefnum.

Málstofa um Karl Barth og kvöldmáltíðina

Aðalbygging Háskóla Íslands - mynd: Árni Svanur Daníelsson

Mánudaginn 6. sept. n.k. kl. 11:40 verður málstofa á vegum Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar í stofu 229 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Þá flytur dr. Paul T. Nimmo, kennari við háskólann í Edinborg, fyrirlestur með yfirskriftinni „Karl Barth and the Eucharist: Trinity, Obedience, and Witness.“

Hjálparstarf kirkjunnar sendir 2,5 milljónir króna til neyðarhjálpar í Pakistan

Börn í Pakistan. Mynd: Ghulam Rasool/CWS-ACT International

Hjálparstarf kirkjunnar sendir 2,5 milljónir króna til neyðarhjálpar í Pakistan. Þeim er miðlað  í gegnum  ACT Alliance sem Hjálparstarfið er aðili að.