Barna- og unglingastarfið í fullum gangi
Barna- og æskulýðsstarf safnaðanna í Múlaprófastsdæmi er nú komið í fullan gang í vetur.
Í Bakkagerðiskirkju er kirkjuskóli um það bil annan hvorn mánudag kl. 14 og TTT-starf í Heiðargerði sömu daga kl. 15:30.
Í Egilsstaðakirkju er sunnudagaskóli hvern sunnudag kl. 11 og Stjörnustund fyrir 2.-4. bekk á fimmtudögum kl. 17. Í safnaðarheimilinu er: TTT-starf á þriðjudögum kl. 15:30 og æskulýðsfélagið Bíbí á fimmtudögum kl. 20.
Í Kirkjuselinu í Fellabæ er kirkjuskóli á laugardögum kl. 11 í okt., nóv., feb. og mars.
Í Seyðisfjarðarkirkju er kirkjuskólinn á þriðjudögum kl. 15:15 og TTT-starf sömu daga kl. 19:30.
Í Skeggjastaðakirkju er opið hús fyrir 1.-7. bekk í safnaðarheimilinu, miðvikudaga kl. 17-18.
Í Vopnafjarðarkirkju er sunnudagaskóli á sunnudögum kl. 11, TTT-starf á þriðjudögum kl. 14-15 og æskulýðsfélagið á þriðjudögum kl. 20.
Davíð Þór, 4/2 2010 kl. 13.41