Messa á Klyppsstað 18. júlí kl. 14
Árleg messa í Klyppsstaðarkirkju í Loðmundarfirði fer fram nk. sunnudag, 18. júlí og hefst hún kl. 14. Allir eru hjartanlega velkomnir og messukaffi verður í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs að athöfn lokinni.
Klyppsstaðakirkja var reist 1895, en prestur sat þar til 1888. Eftir það var staðnum þjónað frá Dvergasteini og síðar Seyðisfirði. Klyppsstaðarkirkja var hins vegar aldrei afhelguð og hefur verið messað þar um miðjan júlí undanfarin ár. Til Loðmundarfjarðar er jeppavegur frá Borgarfirði og þarf að áætla a.m.k. klukkustund í þann akstur. Kirkjan er friðuð.
Fyrri hluta 20. aldar var nokkuð blómleg byggð í Loðmundarfirði. Um aldamótin 1900 voru íbúar 87. Bæirnir voru tíu en um miðja 20. öldina komst los á byggðina, þannig að 5 jarðir fóru í eyði á árunum 1940-1965. Stærstu jarðirnar, Stakkahlíð og Sævarendi voru lengst í byggð, hin síðarnefnda til 1973.
Sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir prófastur predikar að þessu sinni en sr. Vigfús I. Ingvarsson og sr. Lára G. Oddsdóttir þjóna fyrir altari. Hjalti Jón Sverrisson guðfræðinemi og tónlistarmaður leikur undir sálmasönginn á gítar.
Davíð Þór, 12/7 2010 kl. 9.57