Messur um verslunarmannahelgi
Um næstu helgi, verslunarmannahelgina, verður hinn góðkunni tónlistarmaður, Þorvaldur Halldórsson, á ferð í Múlaprófastsdæmi. Mun hann annast tónlistarflutning í léttum dúr við messur í þremur kirkjum á sunnudaginn og tala til safnaðanna á sinn einstaka og persónulega máta.
Messurnar með Þorvaldi verða sem hér segir, allar nk. sunnudag, 1. ágúst:
Í Egilsstaðakirkju kl. 11:00, sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir þjónar.
Í Bakkagerðiskirkju, Borgarfirði eystra, kl. 16:00, sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir þjónar.
Í Valþjófsstaðarkirkju í Fljótsdal kl. 20:30 um kvöldið, sr. Lára G. Oddsdóttir þjónar.
Verið öll hjartanlega velkomin að taka þátt í helgihaldi safnaðanna!
Davíð Þór, 26/7 2010 kl. 12.20