Af heimsókn Þorvaldar Halldórssonar
Um verslunarmannahelgina var tónlistarmaðurinn góðkunni, Þorvaldur Halldórsson, á ferð í Múlaprófastsdæmi og leiddi tónlistarflutning í guðsþjónustum í þremur kirkjum með sínum einstaka hætti. Með honum í för var eiginkona hans, Margrét Scheving, sem leiddi sönginn ásamt honum. Var góður rómur gerður að heimsókn þeirra hjóna í söfnuðunum. Hófu þau þjónustuna sl. sunnudag í Egilsstaðakirkju, en síðdegis var förinni heitið í Bakkagerðiskirkju, Borgarfirði eystra. Við guðsþjónustur á þessum stöðum þjónaði með þeim sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir.< Um kvöldið sungu þau svo og léku við messu í Valþjófsstaðarkirkju í Fljótsdal. Þar var meðfylgjandi mynd tekin að lokinni kvöldmessu, af tónlistarhjónunum ásamt sóknarprestinum, sr. Láru G. Oddsdóttur. Hún predikaði og þjónaði fyrir altari í messunni, en Þorvaldur talaði einnig til safnaðarins. Að messu lokinni buðu prestshjónin á Valþjófsstað, sr. Lára og Sigmar Ingason, öllum viðstöddum í kirkjukaffi á prestssetrinu. Messan var vel sótt, ekki síst af ferðafólki, enda veður gott eystra um helgina og Fljótsdalurinn skartaði sínu fegursta.Þorgeir Arason, 4/8 2010 kl. 9.13
