Útimessa í Valþjófsstaðarprestakalli
Hin árlega útimessa í Valþjófsstaðarprestakalli verður að þessu sinni í mynni Sanddals að austan sunnudaginn 8. ágúst 2010, kl. 14:00.
Til þess að komast að messustað er ekið eftir Kárahnjúkavegi F910, að afleggjara meðfram Sandá sem merktur er EYJABAKKAR. (Sjá meðfylgjandi kort, þar sem messustaður er merktur P.)
Sóknarpresturinn, Lára G. Oddsdóttir prédikar og þjónar við messuna. Gylfi Björnsson spilar á harmónikku undir sálmasöng. Páll Pálsson frá Aðalbóli lýsir staðháttum og náttúrufari í kringum Snæfell og á Eyjabökkum.
Messugestum er bent á að koma hlýlega klæddir til messunnar og taka með sér nesti svo hægt verði að sameinast í messukaffi að loknu helgihaldi.
Allir eru velkomnir.
Nánari upplýsingar um messustað og aðkomu að honum veitir sóknarpresturinn, Lára G. Oddsdóttir í síma 892 9328.
Davíð Þór, 4/8 2010 kl. 13.49