Helgihald 14.-15. ágúst
Helgihald í Múlaprófastsdæmi um næstu helgi verður sem hér segir:
Laugardagur, 14. ágúst
Möðrudalskirkja: Messa kl. 14:00. Prestur sr. Lára G. Oddsdóttir.
Sunnudagur, 15. ágúst
Egilsstaðakirkja: Messa kl. 11:00. Prestur sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir.
Vopnafjarðarkirkja: Léttmessa kl. 14:00. Tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson, KK, leikur og syngur. Prestur sr. Stefán Már Gunnlaugsson.
Eiríksstaðakirkja: Messa kl. 16:00. Prófastur Múlaprófastsdæmis, sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir vísiterar söfnuðinn og prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti, sr. Láru G. Oddsdóttur. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson.
Verið öll velkomin að taka þátt í helgihaldi safnaðanna!
Þorgeir, 8/8 2010 kl. 22.26