Guðsþjónusta á Skriðuklaustri 22. ágúst
Guðsþjónusta verður haldin við rústir gömlu klausturkirkjunnar á Skriðuklaustri, sunnudaginn 22. ágúst kl. 16:30. Sr. Cecil Haraldsson, prestur Þjóðkirkjunnar á Seyðisfirði, og sr. Davíð Tencer, prestur kaþólsku kirkjunnar, þjóna saman við guðsþjónustuna að þessu sinni.
Guðsþjónustan er árlegur viðburður, hluti af dagskrá Fljótsdalsdags Ormsteitis, og er að sjálfsögðu öllum opin.
Þorgeir Arason, 16/8 2010 kl. 13.56