Austurlandsprófastsdæmi

 

Leikjanámskeið og léttmessa á Vopnafirði

Mikið er um að vera í Vopnafjarðarkirkju þessa dagana. Sl. sunnudag söng tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson, KK, þar við vel heppnaða léttmessu, sem haldin var í tengslum við bæjarhátíðina Einu sinni á ágústkvöldi.

Þessa vikuna taka svo 20 fjörug börn á aldrinum 6-10 ára í bænum þátt í leikjanámskeiði kirkjunnar þar sem samverustundir í kirkjunni, leikir, ferðalög og föndur fléttast saman. Leiðbeinendur eru sr. Stefán Már Gunnlaugsson, sóknarprestur, og Kristín Jónsdóttir, ásamt aðstoðarleiðtogum.

Nánar má lesa um léttmessuna og leikjanámskeiðið og skoða myndir á heimasíðu Hofsprestakalls. Myndbrot úr léttmessunni, þar sem KK syngur um Vegbúann, má finna með því að smella hér.

Þorgeir Arason, 19/8 2010 kl. 10.38

     

    Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS