Sunnudagurinn 29. ágúst
Helgihald í Múlaprófastsdæmi næsta sunnudag, 29. ágúst, verður sem hér segir:
Egilsstaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Fermingarbörn næsta vors á Héraði kölluð til starfa. Sr. Lára G. Oddsdóttir predikar og sr. Vigfús I. Ingvarsson þjónar fyrir altari. Organisti Torvald Gjerde.
Kirkjubæjarkirkja: Messa kl. 14. Sr. Vigfús I. Ingvarsson predikar og þjónar fyrir altari. Kaffisala kvenfélagsins í Tungubúð eftir messu.
Lesa má ritningarlestra, sálm og bæn dagsins með því að smella hér. Verið öll velkomin til kirkju!
Davíð Þór, 24/8 2010 kl. 15.11