Austurlandsprófastsdæmi

 

“Með sama hugarfari og Kristur” – Æskulýðsmót í Brúarásskóla

Helgina 4.-6. febrúar 2011 verður haldið æskulýðsmót í Brúarásskóla í Jökulsárhlíð á Norður-Héraði. Yfirskrift mótsins er sótt í Filippíbréfið 2.5: “Með sama hugarfari og Kristur”. Mótið er ætlað unglingum í 8.-10. bekk, sem taka þátt í æskulýðsstarfi kirkjunnar sinnar, og gert er ráð fyrir yfir 100 þátttakendum.

Á mótinu fræðast krakkarnir um mannréttindi með nýstárlegum hætti og taka þátt í smiðjum þar sem m.a. verður boðið upp á leiklistarhóp, fjölmiðlahóp og tónlistarhóp. Þátttökugjald er 6.500 kr. án rútuferða.

Upplýsingabækling um mótið má finna með því að smella hér (í lit) eða með því að smella hér (í svart/hvítu, minna skjal).

Hin árlega Hæfileikakeppni NorðAusturlands (HÆNA), sem að þessu sinni verður haldin í Egilsstaðaskóla laugardagskvöldið 5. febrúar, fellur inn í dagskrá mótsins. Æskulýðssamband Eyjafjarðarprófastsdæmis hefur umsjón með keppninni og er nánari upplýsingar um hana að finna hér.

Davíð Þór, 29/12 2010 kl. 15.41

     

    Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS