Ánægjulegt æskulýðsmót að baki
Um 100 unglingar á aldrinum 13 til 16 ára og leiðtogar þeirra af Norður- og Austurlandi tóku þátt í æskulýðsmótinu sem haldið var um síðustu helgi í Brúarásskóla á Fljótsdalshéraði. Þema mótsins var “Með sama hugarfari og Kristur” og vísar til þess að við erum öll ólík, en eitt. Höfum margbreytilega hæfileika, sem við eigum að nýta hvert fyrir annað og samfélag okkar. Í þemastund á laugardeginum var fræðsla um mannréttindi, hver við erum, hvað við eigum sameiginlegt og mikilvægi þess að hugsa til þeirra sem njóta ekki mannréttinda.
Á mótinu var unnið í smiðjum þar sem þátttakendur gátu látið ljós sitt skína með skapandi tónlist, leiklist og listsköpun. Einnnig var boðið upp á skyndihjálparhóp, leikjahóp og fjölmiðlahóp, sem bjó til fréttablað og leitaði leiða til að ná eyrum og augum fjölmiðla.
Á laugardagskvöldinu fór fram hin árlega Hæfileikakeppni NorðAusturlands sem hefur þá skemmtilegu skammstöfun HÆNA. Keppnin fór að þessu sinni fram í Egilsstaðaskóla og keppt var í þremur flokkum. Í frjálsum flokki sigraði Matthías Þór Sverrisson frá Reyðarfirði, í flokki söngs og tónlistar sigraði hópur úr æskulýðsfélaginu Bíbí á Fljótsdalshéraði (hópflokkur) og Stefanía Tara Þórhallsdóttir frá æskulýðsfélaginu Glerbroti í Glerárkirkju (einstaklingsflokkur) og í flokki dans og líkamstjáningar sigraði danshópur frá æskulýðsfélagi Vopnafjarðarkirkju. Að keppninni lokinni var svo haldið stórt sundlaugarpartý í sundlauginni á Egilsstöðum.
Mótinu lauk með fjölmennri æskulýðsguðsþjónustu í Kirkjubæjarkirkju, elstu kirkju Fljótsdalshéraðs, á sunnudeginum. Þar tóku unglingarnir virkan þátt og sýndu hluta af afrakstri hópavinnu helgarinnar. Tónlistarhópur, undir stjórn Hjalta Jóns Sverrissonar tónlistarmanns, flutti gamlan sálm í nýstárlegri útgáfu með bæði hefðbundnum og óhefðbundnum hljóðfærum. Leikhópur, undir stjórn Laufeyjar Brár Jónsdóttur leikara, flutti frumsaminn leikþátt sem unninn var út frá þema æskulýðsmótsins. Unglingar leiddu bæn og lásu ritningarlestur, vígslubiskup Hólaumdæmis, sr. Jón A. Baldvinsson, predikaði í guðsþjónustunni en sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir sóknarprestur og sr. Hildur Eir Bolladóttir þjónuðu fyrir altari.
Myndir frá mótinu má skoða hér.
Davíð Þór, 7/2 2011 kl. 11.37
