Austurlandsprófastsdæmi

 

Fjölmenni við aðventuhátíð á Hjaltastað

Um 50 manns sóttu sameiginlega aðventustund Eiða- og Hjaltastaðarsókna, sem fram fór í Hjaltastaðarkirkju sl. sunnudag, 18. desember, þrátt fyrir að fresta þyrfti stundinni um viku vegna veðurs. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá í tali og tónum undir stjórn sóknarprests og undirbúningsnefndar og eftir stundina gæddu viðstaddir sér á heitu súkkulaði og kökum. Á myndinni að neðan er söngsveitin Hjartafimmurnar búin að kalla börnin í kirkjunni upp til að syngja með sér jólalag.

Þorgeir Arason, 20/12 2011 kl. 10.36

     

    Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS