Austurlandsprófastsdæmi

 

Spurningakeppni fermingarbarnanna!

Sigurliðið 2011 - Egilsstaðakirkja

Nú er komið að því! Úrslitin í spurningakeppni fermingarbarna á Austurlandi veturinn 2011-2012 verða haldin sunnudaginn 29. janúar nk. kl. 14:00 á Eiðum. Keppnin hefst með fjölskylduguðsþjónustu í Eiðakirkju kl. 14, síðan verður haldið í Kirkjumiðstöðina við Eiðavatn þar sem boðið verður upp á léttar kaffiveitingar og sjálf spurningakeppnin fer fram þar. Gert er ráð fyrir að keppninni ljúki ekki seinna en kl. 17:00.

Þau lið sem hafa unnið sér þátttökurétt í undanúrslitum eru frá Egilsstöðum, Stöðvarfirði/Breiðdalsvík, Borgarfirði og Reyðarfirði. Fyrst verður keppt í undanúrslitum og sigurvegararnir úr þeim viðureignum keppa síðan til úrslita. Allir keppendur fá gjöf sem viðurkenningu fyrir þátttökuna, en sigurvegarar keppninnar fá einnig vegleg verðlaun auk farandbikars.

Dómari keppninnar verður líkt og í fyrra Stefán Bogi Sveinsson, Útsvarskappi. Áhorfendum mun nú einnig gefast kostur á að taka þátt í laufléttri áhorfendakeppni þar sem vegleg verðlaun verða í boði. Fjölskyldumeðlimir, bekkjarfélagar og aðrir stuðningsmenn eru að sjálfsögðu velkomnir!

Davíð Þór, 23/1 2012 kl. 13.55

     

    Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS