Austurlandsprófastsdæmi

 

TTT-dagur á Vopnafirði – Myndir

Um tuttugu 10-12 ára börn í kirkjustarfi á Vopnafirði og Bakkafirði hittust sl. föstudag, 29. janúar, á árlegum TTT-degi samstarfssvæðisins, sem að þessu sinni fór fram í félagsheimilinu Miklagarði og Vopnafjarðarkirkju. Á dagskránni voru m.a. leikir og þrautir, spurningakeppni, brandaramaraþon, pylsupartí og helgistund. Eins og sjá má á myndunum var glatt á hjalla! Fræðslufulltrúi prófastsdæmisins skipulagði daginn og annaðist framkvæmd hans ásamt sóknarprestunum og öflugum hópi ungra leiðtogaefna.

Þorgeir, 1/2 2012 kl. 10.11

     

    Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS