Austurlandsprófastsdæmi

 

Kynningarfundur á Egilsstöðum vegna biskupskjörs

Kynningarfundur í Austurlandsprófastsdæmi vegna væntanlegs kjörs biskups Íslands verður haldinn í Kirkjuselinu í Fellabæ laugardaginn 3. mars nk. kl. 13:00.

Á fundinn eru formlega boðaðir allir kjörmenn í Austurlandsprófastsdæmi skv. kjörskrá birtri 1. feb. sl, þ.e. þjónandi prestar í prófastsdæminu, formenn sóknarnefnda og kirkjuþingsfulltrúar. Fundurinn er þó öllum opinn og eru formenn sóknarnefnda hvattir til að greina meðnefndarmönnum sínum frá honum. Ekki þarf að tilkynna þátttöku sérstaklega.

Dagskrá fundarins verður með því móti, að frambjóðendur munu flytja stutta kynningu á sér og málefnum sínum. Að því búnu verður boðið upp á fyrirspurnir / almennar umræður. Boðið verður upp á kaffiveitingar. Gert er ráð fyrir að fundurinn standi ekki lengur en í tvo og hálfan tíma.

Fundurinn er haldinn í samstarfi framkvæmdastjóra Kirkjuráðs og héraðsnefndar Austurlandsprófastsdæmis. Fundurinn er einn af kynningarfundum þeim í öllum landshlutum, sem haldnir eru í byrjun mars í samræmi við ályktun Kirkjuráðs frá 18. jan. sl., sjá nánar á vef Þjóðkirkjunnar. Vakin er athygli á að fyrirhugað er að taka fyrsta kynningarfund frambjóðendanna, í Reykjavík, upp á myndband og birta á vef kirkjunnar í framhaldinu til að auðvelda kjósendum að kynna sér frambjóðendur.

Davíð Þór, 14/2 2012 kl. 11.36

     

    Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS