-
-
Jóhann Grétar Einarsson og Þorgerður Jónsdóttir, Seyðisfirði
-
-
F.v.: Þórhallur Pálsson, Eiðum, sr. Cecil Haraldsson, Seyðisfirði, Ásdís Þórðardóttir, Djúpavogi
-
-
Sr. Davíð Baldursson, prófastur
-
-
Davíð Þór Jónsson
-
-
F.v.: Guðjón B. Magnússon, Neskaupstað, Eiríkur Ólafsson, Kolfreyjustaðarsókn og Ómar Bjarnþórsson, Heydalasókn
Sameining prófastsdæmanna, kirkjubíó og erfið fjárhagsstaða safnaðanna var meðal umræðuefna á fyrsta héraðsfundi nýstofnaðs Austurlandsprófastsdæmis í Kirkjumiðstöðinni við Eiðavatn sl. laugardag. Fundurinn hófst með messu í Eiðakirkju þar sem sr. Cecil Haraldsson predikaði. Að loknum hádegisverði fóru fram síðustu héraðsfundir hinna gömlu Múla- og Austfjarðaprófastsdæma þar sem reikningar þeirra voru samþykktir. Síðan hófst hinn eiginlegi héraðsfundur Austurlandsprófastsdæmis og sjást hér nokkrar myndir af fundarmönnum. Fundargerð verður birt hér á vefnum þegar hún liggur fyrir.
Þorgeir, 27/2 2012 kl. 10.33