Austurlandsprófastsdæmi

 

TTT mót á Eiðum

Helgina 13. – 15. apríl var haldið TTT-mót í Kirkjumiðstöð Austurlands á Eiðum. Þar komu saman um 70 börn á aldrinum 10 – 12 ára hvaðanæva af Austurlandi og undu sér saman við leik, söng og fræðslu, lofgjörð og bæn. Yfirskrift mótsins að þessu sinni var: „Mannréttindi fyrir alla.“

TTT stendur fyrir „tíu til tólf“ og er heitið á æskulýðsstarfi Þjóðkirkjunnar sem er miðað við þennan aldurshóp. TTT-starf á Austurlandi er nú komið í sumarfrí, en hefst á ný á hausti komanda af endurnýjuðum þrótti.

Þorgeir, 24/4 2012 kl. 15.24

     

    Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS