Austurlandsprófastsdæmi

 

Fermingar

FERMINGARNÁMSKEIÐ MÚLAPRÓFASTSDÆMIS 2010
Kirkjumiðstöðinni við Eiðavatn

Öll fermingarbörn vorsins 2011 í Múlaprófastsdæmi sækja tveggja sólarhringa fermingarfræðslunámskeið í Kirkjumiðstöðinni við Eiðavatn í haust. Námskeiðið er hluti af fermingarfræðslu vetrarins auk þess sem tími er fyrir útivist, kvöldvökur, spurningakeppni o.fl. (sjá dagskrá).

Námskeiðin verða sem hér segir:

23.-25. september:
Egilsstaðir (8. A og 8. Í), Seyðisfjörður, Borgarfjörður.

21.-23. október:
Þórshöfn, Bakkafjörður, Vopnafjörður, Fellabær, Hallormsstaður.

(Dagsetningar eru auglýstar með fyrirvara um breytingar.)

Þess er vænst að öll fermingarbörnin hafi tök á að taka þátt í þessu námskeiði. Ef fjárhagur hindrar för skal hafa samband við sóknarprest.

Fermingarbúðirnar standa frá síðdegi á fimmtudegi til síðdegis á laugardegi. Foreldrar þurfa að sækja um leyfi til skólastjóra fyrir börn sín á föstudeginum.

DAGSKRÁ NÁMSKEIÐSINS:

Fimmtudagur:

16:30 Koma í Kirkjumiðstöðina – Kaffi
17:15 Samhristingur
17:45 Fermingarfræðsla I-II
19:15 Kvöldmatur
20:00 Fermingarfræðsla III
20:45 Undirbúningur kvöldvöku/ frjáls tími
22:00 Kvöldvaka og kvöldhressing
23:30 Miðnæturratleikur
00:15 Helgistund
00:30 Góða nótt!

Föstudagur:

09:00 Góðan dag!
09:30 Morgunmatur
10:00 Morgunbænir
10:15 Tiltekt á herbergjum
10:30 Fermingarfræðsla IV-V
12:00 Hádegismatur
12:45 Fermingarfræðsla VI
13:30 Bænaganga + Frjáls tími
15:00 Kaffi
16:00 Spurningakeppni fermingarbarnanna + Frjálst
18:00 Undirbúningur kvöldvöku/ frjáls tími
19:00 Kvöldmatur
19:45 Kvikmyndasýning og umræður um kvikmynd
22:00 Kvöldvaka og kvöldhressing
23:30 Helgistund
00:00 Góða nótt!

Laugardagur:

09:00 Góðan dag!
09:30 Morgunmatur
10:00 Morgunbænir
10:30 Fermingarfræðsla VII–IX
12:30 Hádegismatur
13:00 Tiltekt, pökkun og frágangur
13:30 Messusmiðjur
15:00 Messa
16:00 Kaffi
16:30 Heimferð

KOSTNAÐUR:
Þátttökugjald fyrir hvert barn er kr. 6.000,– og er innifalið í því allt fæði, gisting í tvær nætur og öll dagskrá. Sóknarnefndirnar niðurgreiða að verulegu leyti kostnað við dvöl barnanna.
Prestarnir taka við greiðslu á staðnum. Einnig má leggja inn á reikning Kirkjumiðstöðvarinnar nr. 166-26-44, kt. 441185-0659 (setjið nafn barns í skýringu og hafið kvittun meðferðis).

ÞAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA MEÐ:
Sæng eða svefnpoki, lak, snyrtidót, VASALJÓS, handklæði, skriffæri (pennaveski), Biblía eða Nýja testamenti og föt til útivistar.

ÞAÐ SEM EKKI MÁ HAFA MEÐ:
GSM-sími, tölva eða leikjatölva, gos (þ.m.t. orkudrykkir) og sælgæti.

LYF
Ef fermingarbarn notar lyf skal tilkynna presti það og ræða um notkun þeirra og varðveislu.
Einnig skal tilkynna presti ef barn þjáist af ofnæmi eða einhverjum sjúkdómi.

NÁNARI UPPLÝSINGAR
má fá hjá sóknarprestum
eða hjá umsjónarmanni námskeiðanna
(Þorgeir, s. 895-3606/ thorgeir.arason@kirkjan.is).

STARFSMENN NÁMSKEIÐANNA Í ÁR:

Hjalti Jón Sverrisson guðfræðinemi, Gunnar Einar Steingrímsson djákni, sr. Þorgeir Arason og sóknarprestar sjá um fræðslu og dagskrá.
Eldhús: Kristjana Björnsdóttir og hennar fólk.

FERÐIR TIL OG FRÁ STAÐNUM:

Fermingarbörn á Fljótsdalshéraði:
Forráðamenn annist akstur.

Ferðir annars staðar frá:
Skv. upplýsingum frá sóknarpresti.

 

Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS