Austurlandsprófastsdæmi

 

Ritningarvers fermingarbarna

GAMLA TESTAMENTIÐ

1. Mósebók 1:1

Í upphafi skapaði Guð himin og jörð.

1. Mósebók 1:3

Guð sagði: Verði ljós! Og það varð ljós.

2. Mósebók 23:20

Sjá, ég sendi engil á undan þér til að varðveita þig á ferðinni og leiða þig til þess staðar, sem ég hefi fyrirbúið.

5. Mósebók 29:9. 13.

Varðveitið því orð þessa sáttmála og breytið eftir þeim, til þess að yður lánist vel allt, sem þér gjörið.

5. Mósebók 31:6

Verið hughraustir og öruggir, óttist eigi og hræðist þá eigi, því að Drottinn Guð þinn fer sjálfur með þér. Hann mun ekki sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig.

Jósúabók 1: 9

Hefi ég ekki boðið þér: Ver þú hughraustur og öruggur? Lát eigi hugfallast og óttast eigi, því að Drottinn Guð þinn er með þér í öllu, sem þú tekur þér fyrir hendur.

1. Samúelsbók 2:2

Enginn er heilagur sem Drottinn, því að enginn er til nema þú, ekkert bjarg er til sem vor Guð.

2. Samúelsbók 22:2-3

2. Drottinn er bjarg mitt og vígi, hann er sá sem hjálpar mér.

3. Guð minn er hellubjarg mitt, þar sem ég leita hælis, skjöldur minn og horn hjálpræðis míns, háborg mín og hæli, frelsari minn, sem frelsar mig frá ofbeldi.

2. Samúelsbók 22:31-32

31. Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er skírt. Skjöldur er hann öllum þeim, sem leita hælis hjá honum.

32. Því að hver er Guð, nema Drottinn, og hver er hellubjarg, utan vor Guð?

2. Kroníkubók 15:7

En verið þér öruggir og látið yður eigi fallast hendur, því að breytni yðar mun umbun hljóta.

Jobsbók 11: 17

Lífið mun renna upp bjartara en hádegið, þótt dimmi, þá mun það verða sem morgunn.

Jobsbók 19:25

Ég veit, að lausnari minn lifir, og hann mun síðastur ganga fram á foldu.

Jobsbók 22:21,22

21. Vingast þú við Guð, þá muntu vera í friði, við það mun blessun yfir þig koma.

22. Tak á móti kenning af munni Guðs, og fest þér orð hans í hjarta.

Jobsbók 28:28

Sjá, að óttast Drottin það er speki, og að forðast illt það er viska.

Sálmarnir 9:11

Þeir er þekkja nafn þitt, treysta þér, því að þú, Drottinn, yfirgefur eigi þá, er þín leita.

Sálmarnir 16:5-7

5. Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.

Sálmarnir 20:5

Guð veiti þér það er hjarta þitt þráir, og veiti framgang öllum áformum þínum.

Sálmarnir 23:1-3

1. Davíðssálmur. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.

2. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta.

3. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns.

Sálmarnir 23:6

Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi.

Sálmarnir 25:10

Allir vegir Drottins eru elska og trúfesti fyrir þá er gæta sáttmála hans og vitnisburða.

Sálmarnir 25:12

Ef einhver óttast Drottin, mun hann kenna honum veg þann er hann á að velja.

Sálmarnir 25:20

Varðveit líf mitt og frelsa mig, lát mig eigi verða til skammar, því að hjá þér leita ég hælis.

Sálmarnir 27:1. 4-5

Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast?

Sálmarnir 27: 14

Vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur, já, vona á Drottin

Sálmarnir 31:6

Í þínar hendur fel ég anda minn, þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð!

Sálmarnir 34:5

Ég leitaði Drottins, og hann svaraði mér, frelsaði mig frá öllu því er ég hræddist.

Sálmarnir 36:8,10

Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð, mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.

10. Hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós.

Sálmarnir 37:5

Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá.

Sálmarnir 46:2

Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.

Sálmarnir 50:15

Ákalla mig á degi neyðarinnar, og ég mun frelsa þig, og þú skalt vegsama mig.

Sálmarnir 51:12-13

12. Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda.

Sálmarnir 86:11-12

11. Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.

12. Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn, af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu,

Sálmarnir 90:12

Kenn oss að telja daga vora, að vér megum öðlast viturt hjarta.

Sálmarnir 91:11-12

Því að þín vegna býður Guð út englum sínum til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.

Sálmarnir 100:5

Því að Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns.

Sálmarnir 103:1-2

1. Lofa þú Drottin, sála mín, og allt sem í mér er, hans heilaga nafn,

2. lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans.

Sálmarnir 103:8

8. Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur.

Sálmarnir 118:1

Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

Sálmarnir 119:1-3

1. Sælir eru þeir sem breyta grandvarlega, þeir er fram ganga í lögmáli Drottins.

Sálmarnir 119:9-11

9. Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu.

10. Ég leita þín af öllu hjarta, lát mig eigi villast frá boðum þínum.

11. Ég geymi orð þín í hjarta mínu, til þess að ég skuli eigi syndga gegn þér.

Sálmarnir 119:94

94. Þinn er ég, hjálpa þú mér, því að ég leita fyrirmæla þinna.

Sálmarnir 124: 8

8. Hjálp vor er í nafni Drottins, skapara himins og jarðar.

Sálmarnir 130:5

Ég vona á Drottin, sál mín vonar, og hans orðs bíð ég.

Sálmarnir 139:17-18

17. Hversu torskildar eru mér hugsanir þínar, ó Guð, hversu stórkostlegar eru þær allar samanlagðar.

Sálmarnir 143:8

Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg, er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.

Sálmarnir 145:9

Drottinn er öllum góður, og miskunn hans er yfir öllu, sem hann skapar.

Sálmarnir 145:15-16

15. Allra augu vona á þig, og þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma.

16. Þú lýkur upp hendi þinni og seður allt sem lifir með blessun.

Sálmarnir 145:18-19

18. Drottinn er nálægur öllum sem ákalla hann, öllum sem ákalla hann í einlægni.

19. Guð uppfyllir ósk þeirra er óttast hann, og hróp þeirra heyrir hann og hjálpar þeim.

Sálmarnir 146:5-10

5. Sæll er sá, er á Jakobs Guð sér til hjálpar, sá er setur von sína á Drottin, Guð sinn,

Orðskviðirnir 3:5

Treystu Drottni af öllu hjarta, en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.

Orðskviðirnir 4:11

Ég vísa þér veg spekinnar, leiði þig á brautir ráðvendninnar.

Jesaja 40:28-31

28. Veistu þá ekki? Hefir þú ekki heyrt? Drottinn er eilífur Guð, er skapað hefir endimörk jarðarinnar. Hann þreytist ekki, hann lýist ekki, speki hans er órannsakanleg.

29. Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa.

30.-31 Ungir menn þreytast og lýjast, og æskumenn hníga, en þeir, sem vona á Drottin, fá nýjan kraft, þeir fljúga upp á vængjum sem ernir. Þeir hlaupa og lýjast ekki, þeir ganga og þreytast ekki.

Jesaja 40:10

Óttast þú eigi, því að ég er með þér. Lát eigi hugfallast, því að ég er þinn Guð. Ég styrki þig, ég hjálpa þér, ég styð þig með hægri hendi réttlætis míns.

Jesaja 41:13

Því að ég, Drottinn, Guð þinn, held í hægri hönd þína og segi við þig: Óttast þú eigi, ég hjálpa þér!

Jesaja 54:10

10. Því þótt fjöllin færist úr stað og hálsarnir riði skal mín miskunnsemi við þig ekki færast úr stað og minn friðarsáttmáli ekki raskast, segir miskunnari þinn, Drottinn.

Jeremía 29:11

Því að ég þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með yður segir Drottinn fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð.

Jeremía 29:12-13

12. Þá munuð þér ákalla mig og fara og biðja til mín, og ég mun bænheyra yður.

13. Og þér munuð leita mín og finna mig. Þegar þér leitið mín af öllu hjarta,

Jeremía 31:3

Úr fjarlægð birtist Drottinn mér: Með ævarandi elsku hefi ég elskað þig. Fyrir því hefi ég látið náð mína haldast við þig.

Harmljóðin 3:22-24

22. Náð Drottins er ekki þrotin, miskunn hans ekki á enda,

23. Náð Drottins er ný á hverjum morgni, mikil er trúfesti þín!

24. Drottinn er hlutdeild mín, segir sál mín, þess vegna vil ég vona á hann.

Harmljóðin 3:25-26

25. Góður er Drottinn þeim er á hann vona, og þeirri sál er til hans leitar.

26. Gott er að bíða hljóður eftir hjálp Drottins.

Esekíel 36:26-27

26. Og ég mun gefa yður nýtt hjarta og leggja yður nýjan anda í brjóst, og ég mun taka steinhjartað úr líkama yðar og gefa yður hjarta af holdi.

27. Og ég mun leggja yður anda minn í brjóst og koma því til vegar, að þér hlýðið boðorðum mínum og varðveitið setninga mína og breytið eftir þeim.

Hósea 2:19-20

19. Og ég mun festa þig mér eilíflega, ég mun festa þig mér í réttlæti og réttvísi, í kærleika og miskunnsemi,

20. ég mun festa þig mér í trúfesti, og þú skalt þekkja Drottin.

Nahúm 1:7

Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar, og hann þekkir þá sem treysta honum.

 

NÝJA TESTAMENTIÐ

Matteusarguðspjall 5:3,4, 6

3. Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki.

4. Sælir eru sorgbitnir, því að þeir munu huggaðir verða.

6. Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu saddir verða.

Matteusarguðspjall 5:9

Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.

Matteusarguðspjall 5:14,16

14. Þér eruð ljós heimsins. Borg, sem á fjalli stendur, fær ekki dulist.

16. Þannig lýsi ljós yðar meðal mannanna, að þeir sjái góð verk yðar og vegsami föður yðar, sem er á himnum.

Matteusarguðspjall 6:21.

Því hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera.

Matteusarguðspjall 7:7-8

7. Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða.

8. Því að hver sá öðlast, sem biður, sá finnur, sem leitar, og fyrir þeim, sem á knýr, mun upp lokið verða.

Matteusarguðspjall 18:3

3. Jesús sagði: Sannlega segi ég yður: Nema þér snúið við og verðið eins og börn, komist þér aldrei í himnaríki.

Matteusarguðspjall 18:20

Því að hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni, þar er ég mitt á meðal þeirra.

Matteusarguðspjall 16:26

Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn og fyrirgjöra sálu sinni? Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína?

Matteusarguðspjall 21:22

Allt sem þér biðjið í bæn yðar, munuð þér öðlast, ef þér trúið.

Lúkasarguðspjall 2:10-11

10. Engillinn sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum:

11. Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs.

Lúkasarguðspjall 11:28

Jesús sagði: Sælir eru þeir, sem heyra Guðs orð og varðveita það.

Lúkasarguðspjall 19:10

Því að Mannssonurinn er kominn að leita að hinu týnda og frelsa það.

Lúkasarguðspjall 21:15

Ég mun gefa yður orð og visku, sem engir mótstöðumenn yðar fá staðið í gegn né hrakið.

Markúsarguðspjall 9:23-24

23. Jesús sagði við hann: Ef þú getur! Sá getur allt sem trúir.

Markúsarguðspjall 10:14

Þegar Jesús sá það, sárnaði honum, og hann mælti við þá: Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki.

Jóhannesarguðspjall 6:35

Jesús sagði þeim: Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra, sem til mín kemur, og þann aldrei þyrsta, sem á mig trúir.

Jóhannesarguðspjall 6:47

Jesús sagði: Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir, hefur eilíft líf.

Jóhannesarguðspjall 8:51

Jesús sagði:  Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem varðveitir mitt orð, skal aldrei að eilífu deyja.

Jóhannesarguðspjall 10:11

Jesús sagði:  Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina.

Jóhannesarguðspjall 10:14

Jesús sagði:  Ég er góði hirðirinn og þekki mína, og mínir þekkja mig,

Jóhannesarguðspjall 11:25-26

25. Jesús mælti: Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.

26. Jesús sagði:  Hver sem lifir og trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu?

Jóhannesarguðspjall 12:46

Ég er ljós í heiminn komið, svo að enginn, sem á mig trúir, sé áfram í myrkri.

Jóhannesarguðspjall 13:34-35

34. Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan.

35. Á því munu allir þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars.

Jóhannesarguðspjall 14:1

Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig.

Jóhannesarguðspjall 14:23

Jesús svaraði: Sá sem elskar mig, varðveitir mitt orð, og faðir minn mun elska hann. Til hans munum við koma og gjöra okkur bústað hjá honum.

Jóhannesarguðspjall 14:27

Frið læt ég yður eftir, minn frið gef ég yður. Ekki gef ég yður eins og heimurinn gefur. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist.

Jóhannesarguðspjall 15:12

12. Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður.

Jóhannesarguðspjall 17:3

En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist.

Jóhannesarguðspjall 20:21

Þá sagði Jesús aftur við þá: Friður sé með yður. Eins og faðirinn hefur sent mig, eins sendi ég yður.

Postulasagan 10:34-35

34. Þá tók Pétur til máls og sagði: Sannlega skil ég nú, að Guð fer ekki í manngreinarálit.

Rómverjabréfið 5:1,5

1. Réttlættir af trú höfum vér því frið við Guð fyrir Drottin vorn Jesú Krist.

5. En vonin bregst oss ekki, því að kærleika Guðs er úthellt í hjörtum vorum fyrir heilagan anda, sem oss er gefinn.

Rómverjabréfið 8: 28

Vér vitum, að þeim, sem Guð elska, samverkar allt til góðs, þeim sem kallaðir eru samkvæmt ákvörðun Guðs.

Rómverjabréfið 10:13  

Hver sem ákallar nafn Drottins, mun hólpinn verða.

Rómverjabréfið 12:15

Fagnið með fagnendum, grátið með grátendum.

Rómverjabréfið 12: 21

Lát ekki hið vonda yfirbuga þig, heldur sigra þú illt með góðu.

Rómverjabréfið 15:13

Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni, svo að þér séuð auðugir að voninni í krafti heilags anda.

Rómverjabréfið 15:33

Guð friðarins sé með yður öllum. Amen.

1. Korintubréf 3:16

Vitið þér eigi, að þér eruð musteri Guðs og að andi Guðs býr í yður?

1. Korintubréf 13:13

En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur.

2. Korintubréf 6: 2

Guð segir: Á hagkvæmri tíð bænheyrði ég þig, og á hjálpræðis degi hjálpaði ég þér.Nú er hagkvæm tíð, nú er hjálpræðis dagur.

Galatabréfið 1:3-5

Náð sé með yður og friður frá Guði föður og Drottni vorum Jesú Kristi,

Galatabréfið 5:22

En ávöxtur andans er: Kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska.

Galatabréfið 6:9

Þreytumst ekki að gjöra það sem gott er, því að á sínum tíma munum vér uppskera, ef vér gefumst ekki upp.

Efesusbréfið 2:8-10

8. Því að af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú. Þetta er ekki yður að þakka. Það er Guðs gjöf.

Efesusbréfið 5:1

Verðið því eftirbreytendur Guðs, svo sem elskuð börn hans.

Efesusbréfið 6:10

Styrkist nú í Drottni og í krafti máttar hans.

Filippibréfið 4:4-7

4. Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: Verið glaðir.

5. Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd.

6. Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð.

7. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú.

1. Þessaloníkubréf 5:17-18

17. Biðjið án afláts.

18. Þakkið alla hluti, því að það er vilji Guðs með yður í Kristi Jesú.

1. Þessaloníkubréf 5:23-24

23. En sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheil og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists.

24. Trúr er sá, er yður kallar, hann mun koma þessu til leiðar.

2. Þessaloníkubréf 3:16

En sjálfur Drottinn friðarins gefi yður friðinn, ætíð á allan hátt. Drottinn sé með yður öllum.

Hebreabréfið 13: 2. ,5

2. Gleymið ekki gestrisninni, því að vegna hennar hafa sumir hýst engla án þess að vita.

5. Sýnið enga fégirni í hegðun yðar, en látið yður nægja það, sem þér hafið. Guð hefur sjálfur sagt: Ég mun ekki sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig.

Hebreabréfið 13:16

En gleymið ekki velgjörðaseminni og hjálpseminni, því að slíkar fórnir eru Guði þóknanlegar.

Jakobsbréfið 1:5

Ef einhvern yðar brestur visku, þá biðji hann Guð, sem gefur öllum örlátlega og átölulaust, og honum mun gefast.

1. Pétursbréf 3:10

Sá sem vill elska lífið og sjá góða daga, haldi tungu sinni frá vondu og vörum sínum frá að mæla svik.

1. Pétursbréf 4:8

Umfram allt hafið brennandi kærleika hver til annars, því að kærleikur hylur fjölda synda.

1. Pétursbréf 5: 7

Varpið allri áhyggju yðar á Drottin, því að hann ber umhyggju fyrir yður.

2. Pétursbréf 3:13

Eftir fyrirheiti Guðs væntum vér nýs himins og nýrrar jarðar, þar sem réttlæti býr.

1. Jóhannesarbréf 2:25

Og þetta er fyrirheitið, sem Guð gaf oss: Hið eilífa líf.

1. Jóhannesarbréf 3:18

Börnin mín, elskum ekki með tómum orðum, heldur í verki og sannleika.

1. Jóhannesarbréf 4:7-9

7. Þér elskaðir, elskum hver annan, því að kærleikurinn er frá Guði kominn, og hver sem elskar er af Guði fæddur og þekkir Guð.

8. Sá sem ekki elskar þekkir ekki Guð, því að Guð er kærleikur.

9. Í því birtist kærleikur Guðs meðal vor, að Guð hefur sent einkason sinn í heiminn til þess að vér skyldum lifa fyrir hann.

1. Jóhannesarbréf 4:10, 15

10. Þetta er kærleikurinn: Ekki að vér elskuðum Guð, heldur að hann elskaði oss og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir vorar.

15. Hver sem játar, að Jesús sé Guðs sonur, í honum er Guð stöðugur og hann í Guði.

Júdasarbréfið 1:2

Miskunn, friður og kærleiki margfaldist yður til handa.

Opinberunarbókin 1:8

Ég er Alfa og Ómega, segir Drottinn Guð, hann sem er og var og kemur, hinn alvaldi.

Opinberunarbókin 3:20

Sjá, ég stend við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum, þá mun ég fara inn til hans og neyta kvöldverðar með honum og hann með mér.

 

     

    Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS