Emmaus-námskeið
Emmaus-námskeið um trúna og tilveruna hefst 12. janúar 2010 í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4. Námskeiðið verður á þriðjudagskvöldum kl. 19:30-21:00 og stendur í sex vikur.
Nafn námskeiðsins vísar til frásagnar í Lúkasi 24.13-32 þar sem Jesús upprisinn slæst í för með tveimur lærisveinum á leið til Emmaus. Hann skýrir fyrir þeim ritningarnar, en þeir þekkja hann ekki fyrr en þeir snæða saman og hann brýtur brauðið. (Mynd: Túlkun Kees de Kort á Emmaus-göngunni.)
Lífi okkar má líkja við vegferð. Á Emmaus-námskeiðinu veltum við fyrir okkur á hvaða leið við erum í tilverunni, og hvort við kjósum að Jesús sláist í för með okkur á þeirri vegferð!
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu en tekið er við frjálsum framlögum í kaffisjóð.
Staður: Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4,
Tími: Sex þriðjudagar kl. 19:30-21 frá 12. janúar 2010.
Umsjón með námskeiðinu: Sr. Vigfús I. Ingvarsson sóknarprestur og sr. Þorgeir Arason fræðslufulltrúi
Nánari upplýsingar veitir Þorgeir í síma 895 3606 og í tölvupósti: thorgeir.arason (hjá) kirkjan.is
Skráning: Nóg er að mæta fyrsta kvöldið, ekki þarf að skrá sig sérstaklega fyrir fram.
Dagskrá:
12. janúar:
Er Guð í raun og veru til?
19. janúar:
Þörfin fyrir Guð
26. janúar:
Bænin – andardráttur trúarinnar
2. febrúar:
Að lesa Biblíuna
9. febrúar:
Líf og starf Jesú
16. febrúar:
Guð fylgir þér