Austurlandsprófastsdæmi

 

Hjónanámskeið

Námskeiðið fyrir hjón og sambúðarfólk hefur fyrir nokkru áunnið sér sess sem reglulegur viðburður í safnaðarstarfinu á Héraði. Í vetur verður það haldið í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju við Hörgsás 4 á þriðjudögum kl. 19:00-22:00. Það hefst 1. febrúar 2011 og er sjö samverur.

 

Hver samvera hefst á rómantískri máltíð en síðan er fyrirlestur og þar á eftir ræðir hvert par málefnið út af fyrir sig. Alltaf er tekið tillit til friðhelgi paranna, engar hópumræður eru og engin krafa um að ljóstra upp einhverju úr sambandinu!

 

Námskeiðið byggir á kristnum grunni en hentar einnig pörum sem ekki aðhyllast kristna trú. Námskeiðið hentar ekki pörum sem eiga í sambúðarerfiðleikum sem stendur en þeim er bent á að prestar Þjóðkirkjunnar veita viðtöl án endurgjalds.

 

Verð: 15.000 kr. fyrir par.

 

Innifalið í verði: Sjö rómantískar máltíðir fyrir tvo, fyrirlestrar og verkefnabók.

 

Staður: Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4.

 

Tími: Sjö þriðjudagar kl. 19:00-22:00 frá 1. feb. 2011.

 

Uppl. og skráning: Sr. Þorgeir Arason, sími 895 3606, netpóstur: thorgeir.arason (hjá) kirkjan.is.

 

Dagskrá námskeiðsins vorið 2011:

1. febrúar: Að byggja traustan grunn

8. febrúar: Listin að tjá sig

15. febrúar: Að leysa úr ágreiningi

22. febrúar: Kraftur fyrirgefningarinnar

8. mars: Foreldrar og tengdaforeldrar

22. mars: Gott kynlíf

4. apríl: Ást í verki

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS