Austurlandsprófastsdæmi

 

Farskóli leiðtogaefna á Vopnafirði

Farskóli leiðtogaefna starfar nú í vetur á Austurlandi í samstarfi Múla- og Austfjarðaprófastsdæma. Næsta námskeiðshelgi (önnur af þremur) verður í veiðihúsinu Árhvammi í Vopnafirði um næstu helgi.

Þátttakendur á Héraði og Fjörðum taka rútu SBA frá Upplýsingamiðstöðinni á Egilsstöðum kl. 18:00 á föstudag, 20. nóvember, og koma til baka með prestunum um kvöldmatarleytið á laugardag. Þátttakendur á Vopnafirði mæta í Árhvamm upp úr kl. 19:00 á föstudag og eru sóttir þangað þegar dagskránni lýkur um kl. 17 á laugardeginum, 21. nóvember.

Hafa þarf með sér: Sæng eða svefnpoka, kodda, lak, pennaveski, Biblíu eða Nýja testamenti, snyrtidót og 3000 kr. þátttökugjald.

Síðasta námskeiðshelgin í vetur verður á Eiðum 26.-28. febrúar 2010.

Þorgeir Arason, 17/11 2009

TTT-dagur á Eiðum

Föstudaginn 20. nóvember hittast 10-12 ára börn úr kirkjustarfi á Egilsstöðum, Seyðisfirði og Borgarfirði.

TTT-dagurinn verður í Kirkjumiðstöðinni á Eiðum kl. 16-20. Dagskrá: Amazing Race-þrautaleikur, pylsupartí, kvöldvaka og helgistund. Börnin þurfa að koma klædd eftir veðri og mega gjarnan undirbúa leik eða skemmtiatriði fyrir kvöldvökuna.

Allir krakkar í 5.-7. bekk velkomnir. Nánari upplýsingar hjá sóknarprestum og leiðtogum.

Þorgeir Arason, 17/11 2009

Stúdentamessa á Egilsstöðum

Helgina 13.-15. nóvember fer stúdentamót Kristilegs stúdentafélags (KSF) fram á Eiðum. Þátttakendur eru um 20 og er þetta í fyrsta skipti sem slíkt mót fer fram á Austurlandi.

Í tengslum við mótið verður stúdentamessa í Egilsstaðakirkju á sunnudaginn, 15. nóvember, kl. 11. Létt tónlist í umsjón stúdenta að hluta. Sr. Jón Ómar Gunnarsson æskulýðsprestur Kristilegu skólahreyfingarinnar predikar og þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti. Allir velkomnir.

Þá verður haldin kyndilbænaganga á Egilsstöðum föstudagskvöldið 13. nóvember. Lagt verður af stað frá Menntaskólanum á Egilsstöðum kl. 20:30 og gengið að Sláturhúsinu þar sem kvöldsamkoma hefst kl. 21:15. Lifandi og rafmögnuð tónlist verður á samkomunni og Stefán Bogi Sveinsson flytur ræðu undir yfirskriftinni: Hvað seður mig/þig? Samkomunni er útvarpað á Útvarp Andvarp FM 103,2. Allir velkomnir.

Þorgeir Arason, 12/11 2009

Messa tileinkuð hjálparstarfi á Egilsstöðum

Messa tileinkuð hjálparstarfi verður í Egilsstaðakirkju nk. sunnudag, 1. nóvember, kl. 14. Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, predikar.

Um er að ræða sameiginlega guðsþjónustu safnaða á Fljótsdalshéraði. Prestar á Héraði þjóna fyrir altari og fermingarbörn í sóknunum eru hvött til þátttöku ásamt forráðamönnum.

Allir eru hjartanlega velkomnir til kirkju og eftir messu sjá krakkarnir í í æskulýðsfélaginu Bíbí um vöfflukaffi í safnaðarheimilinu, Hörgsási 4.

Þorgeir Arason, 29/10 2009

Landsmótsferð aflýst á Austurlandi

Fyrirhugaðri ferð yfir 150 unglinga og leiðtoga á Héraði, Vopnafirði og í Austfjarðaprófastsdæmi á Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar í Vestmannaeyjum um næstu helgi hefur verið aflýst vegna svínaflensufaraldursins, sem nú herjar á Austurland.

Stefnt verður að öðrum ferðalögum í æskulýðsstarfinu í staðinn seinna í vetur.

Þorgeir Arason, 14/10 2009

Kirkjuskólinn í Fellabæ byrjar á laugardaginn

Kirkjuskólinn í Fellabæ hefst á laugardaginn, 3. október, kl. 11.

Kirkjuskólinn verður í Kirkjuselinu í Fellabæ alla laugardaga í október og nóvember kl. 11.

Þar er eins og fyrri daginn glatt á hjalla, mikill söngur, brúður og sögur. Umsjón hafa sr. Lára, Drífa organisti og ungir og hressir leiðtogar. Allir velkomnir, stórir og smáir.

Þorgeir Arason, 1/10 2009

Kvöldmessa í Egilsstaðakirkju

Kvöldmessa með léttum blæ verður í Egilsstaðakirkju nk. sunnudagskvöld, 27. september, kl. 20.

Prestar eru sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir og sr. Vigfús I. Ingvarsson.

Sömu helgi hefjast fermingarnámskeið prófastsdæmisins á Eiðum og má lesa um þau hér til hliðar.

Þorgeir Arason, 24/9 2009

Flugslysaæfingar á Egilsstöðum og Vopnafirði

Prestar Múlaprófastsdæmis taka þátt í flugslysaæfingum á Egilsstöðum um helgina og Vopnafirði í október.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 11/9 2009

Predikun í Loðmundarfirði

“Við kaupum okkur ekki réttlæti gagnvart Guði. Og það eru ekki reglurnar sem skipta mestu máli heldur hugarfarið sem að baki býr,” sagði sr. Vigfús I. Ingvarsson m.a. í predikun sinni í Klyppsstaðarkirkju sl. sumar. Ræðuna má lesa að baki “Áfram”-smellunni.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 7/9 2009

Guðsþjónusta – Upphaf vetrarstarfs Vopnafjarðarkirkju

Vetrarstarf Vopnafjarðarkirkju hefst með fjölskylduguðsþjónustu í kirkjunni nk. sunnudag, 6. september, kl. 11.

Lesa áfram …

Þorgeir Arason, 3/9 2009

 

Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS