Austurlandsprófastsdæmi

 

Safnaðarblöð Eskifjarðarprestakalls komin út

Safnaðarblöð eru komin út á nýju ári í Eskifjarðarprestakalli með upplýsingum um safnaðarstarfið fram undan á vorönn. Safnaðarblað Eskifjarðarkirkju má finna með því að smella hér og svo má skoða safnaðarblað Reyðarfjarðarkirkju hér.

Davíð Þór, 31/1 2012

Egilsstaðir unnu spurningakeppnina – myndir

Spurningakeppni fermingarbarna á Austurlandi lauk þennan veturinn með úrslitakeppni á Eiðum sl. sunnudag, 29. janúar. Voru það lið Borgfirðinga (Bakkagerðissóknar), Egilsstaðabúa, Reyðfirðinga og sameiginlegt lið Stöðfirðinga og Breiðdælinga (Heydalaprestakalls), sem höfðu unnið sér þátttökurétt með sigri í undanriðlum á fermingarnámskeiðum haustsins.

Keppnin hefst með fjölskylduguðsþjónustu í Eiðakirkju þar sem sr. Hólmgrímur E. Bragason, héraðsprestur prófastsdæmisins, predikaði, keppendur tóku virkan þátt í lestrum og bænum og Kór Eiðakirkju leiddi sönginn undir stjórn Kristjáns Gissurarsonar organista. Síðan var haldið í Kirkjumiðstöðina við Eiðavatn þar sem kaffiveitingar biðu þátttakenda og gesta og sjálf spurningakeppnin fór fram.

Óhætt er að segja að liðin hafi öll staðið sig með prýði, en í hverri viðureign þurftu keppendur að glíma við hraðaspurningar, látbragðsleik í anda Útsvars og hlaupa á eftir bjöllu. Var um helmingur spurninga úr fermingarfræðsluefni vetrarins en hinn helmingurinn úr ýmsum áttum. Reyndust keppendur vel að sér um boðorðin tíu og gullnu regluna, jafnt sem um íþróttir, stjórnmálamenn eða landafræði.

Svo fór að lið Egilsstaðasóknar vann öruggan sigur á liði Heydalaprestakalls í úrslitaviðureign. Sigurliðið var skipað þeim Guðbjörgu Agnarsdóttur, Ingólfi Erni Jóhannssyni og Jónínu Ósk Jóhannsdóttur. Fengu þau að launum dvöl í ævintýraflokki í Sumarbúðunum við Eiðavatn á komandi sumri, farandbikar o.fl. Aðrir vinningar voru í boði Café Sumarlínu, Nettó, N1, Office1, Prestafélags Austurlands og Skálholtsútgáfunnar.

Dómari keppninnar í ár var Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, og ávarpaði hann einnig gesti í lok keppninnar.

Davíð Þór, 30/1 2012

Héraðsfundur 25. febrúar á Eiðum

Fyrsti héraðsfundur nýstofnaðs Austurlandsprófastsdæmis verður haldinn á Eiðum laugardaginn 25. febrúar nk. Fundurinn hefst með guðsþjónustu í Eiðakirkju kl. 11 árdegis og héraðsfundarstörf fara svo fram í Kirkjumiðstöðinni við Eiðavatn. Á fundinn eru boðaðir prestar prófastsdæmisins og tveir fulltrúar frá hverri sókn, að jafnaði formaður og safnaðarfulltrúi. “Starfsmönnum sókna og prófastsdæmis svo og öllum áhugamönnum innan Þjóðkirkjunnar um kirkjuleg málefni er heimilt að mæta á héraðsfundi með málfrelsi og tillögurétt,” svo sem í starfsreglum greinir. Héraðsnefndir gömlu Múla- og Austfjarðaprófastsdæmanna starfa fram að héraðsfundi, en þá verður kjörin ný héraðsnefnd samkvæmt þar að lútandi reglum. (Myndin er frá héraðsfundi Múlaprófastsdæmis 2010.)

Davíð Þór, 23/1 2012

Sóknarnefndanámskeið á Reyðarfirði

Austurlandsprófastsdæmi boðar í samstarfi við Biskupsstofu til námskeiðs fyrir þá sem sitja í sóknarnefndum prófastsdæmisins. Námskeiðinu er ætlað að styrkja sóknarnefndafólk í sínu mikilvæga hlutverki í þágu kristnilífsins í fjórðungnum. Námskeiðið verður haldið í Safnaðarheimili Reyðarfjarðarkirkju laugardaginn 4. febrúar kl. 10:30-14:30. Leiðbeinandi á námskeiðinu verður sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, verkefnisstjóri á Biskupsstofu.

Dagskrá námskeiðsins:
10:30 Helgistund – sr. Davíð Baldursson prófastur
10:45 Þjóðkirkjan, þjónusta hennar og samstarfssvæðin
12:00 Matarhlé
12:30 Hlutverk sóknarnefnda skv. lögum og reglum sem um þær gilda
14:00 Fyrirspurnir og umræður.
14:30 Námskeiðslok og heimferð

Námskeiðið er sóknarnefndarfólki að kostnaðarlausu en gert ráð fyrir að söfnuðir greiði hádegismatinn fyrir sitt fólk. Athygli er vakin á að Kirkjuþing samþykkti í nóvember sl. nýjar starfsreglur um sóknarnefndir. Gott tækifæri verður á námskeiðinu til að kynna sér þessar nýju reglur. Þeir sem starfa í sóknarnefndum á Austurlandi eru hvattir til að fjölmenna á námskeiðið og nýta tækifærið einnig til að koma með fyrirspurnir um það sem á þeim brennur í safnaðarstarfinu.

Vegna málsverðarins eru sóknarnefndarformenn beðnir að tilkynna þátttöku úr sínum sóknum til héraðsprests prófastsdæmisins (holmgrimur@simnet.is, s. 896-0918) í seinasta lagi 1. febrúar nk.

Davíð Þór, 23/1 2012

Spurningakeppni fermingarbarnanna!

Sigurliðið 2011 - Egilsstaðakirkja

Nú er komið að því! Úrslitin í spurningakeppni fermingarbarna á Austurlandi veturinn 2011-2012 verða haldin sunnudaginn 29. janúar nk. kl. 14:00 á Eiðum. Keppnin hefst með fjölskylduguðsþjónustu í Eiðakirkju kl. 14, síðan verður haldið í Kirkjumiðstöðina við Eiðavatn þar sem boðið verður upp á léttar kaffiveitingar og sjálf spurningakeppnin fer fram þar. Gert er ráð fyrir að keppninni ljúki ekki seinna en kl. 17:00.

Þau lið sem hafa unnið sér þátttökurétt í undanúrslitum eru frá Egilsstöðum, Stöðvarfirði/Breiðdalsvík, Borgarfirði og Reyðarfirði. Fyrst verður keppt í undanúrslitum og sigurvegararnir úr þeim viðureignum keppa síðan til úrslita. Allir keppendur fá gjöf sem viðurkenningu fyrir þátttökuna, en sigurvegarar keppninnar fá einnig vegleg verðlaun auk farandbikars.

Dómari keppninnar verður líkt og í fyrra Stefán Bogi Sveinsson, Útsvarskappi. Áhorfendum mun nú einnig gefast kostur á að taka þátt í laufléttri áhorfendakeppni þar sem vegleg verðlaun verða í boði. Fjölskyldumeðlimir, bekkjarfélagar og aðrir stuðningsmenn eru að sjálfsögðu velkomnir!

Davíð Þór, 23/1 2012

Æskulýðsmót og HÆNA í Hrafnagilsskóla!

Æskulýðssamböndin í Austurlandsprófastsdæmi (ÆSKA) og Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi (ÆSKEY) standa í sameiningu fyrir helgarsamveru á Hrafnagili og Akureyri síðustu helgina í febrúar. Gert er ráð fyrir um 100 unglingum af Austur- og Norðurlandi. Unglingarnir eiga það allir sameiginlegt að vera virkir þátttakendur í kirkjustarfinu. Mótsstjóri er sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur. Þema mótsins er sótt í Biblíuna: ,,Jesús segir: Náð mín nægir þér”. Lesa áfram á vef Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis.

Davíð Þór, 20/1 2012

Davíð Þór Jónsson leysir af sem fræðslufulltrúi

Davíð Þór Jónsson guðfræðingur hefur verið ráðinn fræðslufulltrúi prófastsdæmisins frá 1. mars til 31. ágúst nk. í leyfi sr. Þorgeirs Arasonar. Davíð Þór hefur starfað sem útvarps- og sjónvarpsmaður, leikari, þýðandi, skáld, ritstjóri og pistlahöfundur. Fræðslufulltrúi sinnir ýmsum verkefnum á vettvangi prófastsdæmisins, einkum á sviði æskulýðs- og fræðslumála og annars safnaðarstarfs. Starfsstöð hans er í Fellabæ. Predikun Davíðs Þórs í Egilsstaðakirkju frá nýliðnu gamlárskvöldi má lesa hér.

Davíð Þór, 11/1 2012

Davíð Baldursson skipaður prófastur

Biskup Íslands hefur skipað sr. Davíð Baldursson, sóknarprest Eskifjarðarprestakalls, prófast Austurlandsprófastsdæmis frá 1. febrúar nk. að undangenginni skoðanakönnun meðal sóknarpresta og formanna sóknarnefnda í prófastsdæminu. Sr. Davíð hefur þjónað Eskifjarðarprestakalli frá árinu 1977 og var prófastur Austfjarðaprófastsdæmis fyrir sameiningu prófastsdæmanna á Austurlandi.

Davíð Þór, 11/1 2012

Myndir frá jólatónleikum Egilsstaðakirkju

Jónas Þór Jóhannsson tók þessar myndir á jólatónleikum Egilsstaðakirkju 3. janúar sl.


Kór Egilsstaðakirkju


Barnakór Egilsstaðakirkju, stjórnandi Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir


Unglingakór Egilsstaðakirkju, stjórnandi Margrét Lára Þórarinsdóttir


Kór Vallaness- og Þingmúlakirkna


Eygló Daníelsdóttir lék á flautu


Allir kórarnir sungu saman í lokin


Tónleikarnir voru vel sóttir eins og sjá má

Davíð Þór, 6/1 2012

Jólatónleikar Egilsstaðakirkju

Jólatónleikar Egilsstaðakirkju eru jafnan haldnir á fyrstu dögum nýs árs og verða að þessu sinni í kvöld, þriðjudaginn 3. janúar kl. 20 í kirkjunni. Fram koma: Kór, Barnakór, Unglingakór og Kammerkór Egilsstaðakirkju ásamt Kór Vallaness og Þingmúla. Stjórnandi og undirleikari er Torvald Gjerde. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

Davíð Þór, 3/1 2012

 

Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS