Austurlandsprófastsdæmi

 

ALLIR SAMAN! TTT-mót.

Allir saman! TTT-mót ÆSKÞ og Múlaprófastsdæmis var haldið í Kirkjumiðstöðinni á Eiðum dagana 28. – 29. mars. Sjá nánar á heimasíðu Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar http://www.æskþ.is

Lesa áfram …

Jóhanna Sigmarsdóttir, 13/3 2008

Lifandi steinar

Námskeið i Egilsstaðakirkju á þriðjudögum 25. mars – 29. apríl.

Gott samfélag – fræðsla – sjálfstyrking.

Lesa áfram …

Jóhanna Sigmarsdóttir, 13/3 2008

Fermingar í Eiða- Vallanes- og Valþjófsstaðarprestakalli vorið 2008.

Á þessu vori fermast 43 börn í prestaköllunum þremur.Stærstir eru hóparnir á Egilsstöðum en færri í litlu sóknunum. Fyrsta fermingin er á pálmasunnudag en sú síðasta 22. júní.

Lesa áfram …

Jóhanna Sigmarsdóttir, 12/3 2008

Æskulýðsdagurinn 2. mars

Sunnudaginn 2. mars verður guðsþjónusta í Egilsstaðakirkju kl. 11:00 sem prestar og söfnuðir í prestaköllunum þremur á Héraði sameinast um. Þessi guðsþjónusta verður í fremur einföldu formi og fermingarbörn taka mikinn þátt í þjónustunni og koma m.a. að flutningi samtalsprédikunar. Barnakór Egilsstaðakirkju leiðir söng undir stjórn þeirra Torvalds Gjerde og Sigríðar Laufeyjar Sigurjónsdóttur. 1. sunnudagur í mars hefur lengi verið tileinkaður ungu fólki í kirkjunni.

Vigfús Ingvar Ingvarsson, 29/2 2008

„5 ára messa“ í Egilsstaðakirkju

Mynd leikskólanum SkógarlandBörn sem verða 5 ára á þessu ári eru sérstaklega boðin til einfaldrar guðsþjónustu, sunnudaginn 2. febrúar kl. 11:00. Þau verða eins konar heiðursgestir og fá að gjöf bókina: „Kata og Óli fara í kirkju“.

Lesa áfram …

Vigfús Ingvar Ingvarsson, 31/1 2008

Unglingasamvera á Eiðum

Á vegum svokallaðs Farskóla leiðtogaefna verður helgarsamvera í Kirkjumiðstöðinni við Eiðavatn (´08) frá föstudegi 18. (kl. 20) til laugardags 19. janúar (kl. 17). Um er að ræða samvinnuverkefni Biskupsstofu og prófastsdæmanna á Austurlandi.
Lesa áfram …

Vigfús Ingvar Ingvarsson, 12/1 2008

Helgihald á Héraði og Borgarfirði eystra um jólin 2007

Prestar í Múlaprófastsdæmi óska sóknarbörnum sínum gleðilegra jóla og minna á helgihaldið um hátíðarnar.

23. des. Bakkagerðiskirkja Helgileikur og jólasöngvar kl.11:00

24.des.

Egilsstaðakirkja Aftansöngur kl.18:00

Egilsstaðakirkja Jólanæturmessa kl.23:00

Eiðakirkja Jólanæturguðsþjónusta kl.23:00

Kirkjuselið í Fellabæ Helgistund kl.23:00

25. des.

Sleðbrjótskirkja Hátíðarguðsþjónusta kl.13:00

Áskirkja í Fellum Hátíðarguðsþjónusta kl.14:00

Þingmúlakirkja Hátíðarguðsþjónusta kl.14:00

Kirkjubæjarkirkja Hátíðarguðsþjónusta kl.15:00

Vallaneskirkja Hátíðarguðsþjónusta kl.16:00

Valþjófsstaðarkirkja Hátíðarguðsþjónusta kl.17:00

26. des.

Bakkagerðiskirkja Hátíðarguðsþjónusta kl.13:00

Hofteigskirkja Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00

Egilsstaðakirkja Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00

Sjúkrahúsið á Egilsstöðum Guðsþjónusta kl. 15:00

Hjaltastaðarkirkja Hátíðarguðsþjónusta kl. 16:00

30. des. Kirkjuselið í Fellabæ Tónlistarmessa kl. 20:00

31. des. Egilsstaðakirkja Aftansöngur kl. 18:00

Lesa áfram …

Jóhanna Sigmarsdóttir, 14/12 2007

Aðventuhátíð í Vallaneskirkju

Árleg aðventuhátíð Vallanes- og Þingmúlasóknar verður í Vallaneskirkju 9. desember kl. 19:30. Kór þessara sókna syngur og einnig barnakór og allir syngja saman. Einhverja jólasögu fáum við líka að heyra. Allir eru velkomnir eins og almennt á slíkar samverur og einhver hressing verður boðin áður en haldið er heim.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Vigfús Ingvar Ingvarsson, 7/12 2007

Aðventuhátíð í Egilsstaðakirkju

Aðventuhátíð verður í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 9. desember kl. 17:00. Dagskrá verður hefðbundin og miðað við að öll fjölskyldan geti notið þessarar samveru. Kór Egilsstaðakirkju syngur og einnig Barnakórinn og svo verður að sjálfsögðu almennur söngur. Eðvald Jóhannsson rifjar upp jólaminningar og Ágústa Jónsdóttir flytur frumort ljóð. Í lokin flytja börn helgileik.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Vigfús Ingvar Ingvarsson, 7/12 2007

Jólin og sorgin

Sr. Guðrún Eggertsdóttir, sjúkrahúsprestur ræðir um það að halda jól og hátíð við breyttar aðstæður

Lesa áfram …

Jóhanna Sigmarsdóttir, 1/12 2007

 

Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS