Austurlandsprófastsdæmi

 

Tvær fjölskylduguðsþjónustur á Héraði

Sunnudagurinn 16. október verður fjölskylduvænn hjá söfnuðunum á Héraði.

Þann dag verður fjölskylduguðsþjónusta í Egilsstaðakirkju kl. 11 þar sem barnakór kirkjunnar syngur og barn verður borið til skírnar. Sunnudagaskólinn syngur í guðsþjónustunni og fær svo sérstaka stund í safnaðarstofunni. Hressing og litir eftir stundina.

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður einnig í Valþjófsstaðarkirkju sama dag kl. 11. Þangað fer Kirkjuskólinn í Fellabæ í ferðalag og fer rúta kl. 10:30 frá Kirkjuselinu. Hressing eftir athöfnina og svo rútuferð til baka í Fellabæinn, heimkoma áætluð um kl. 13:30. (Ath. Enginn kirkjuskóli laugardaginn 15. október.)

Davíð Þór, 12/10 2011

Áttavitafundir um þjóðgildin á Vopnafirði, Þórshöfn og Héraði

„Þjóðgildin – áttaviti sem vísar veginn“ var yfirskrift erinda sem Gunnar Hersveinn, heimspekingur, flutti á Vopnafirði, Þórshöfn og í Fellabæ dagana 2.-3. október sl. Fundirnir voru haldnir á vegum safnaða í Múlaprófastsdæmi og í Langanesprestakalli. Verkefni þeirra fólst í að brjóta heilann um hvernig þau gildi, sem valin voru á þjóðfundunum árin 2009 og 2010, gætu orðið áttaviti þjóðarinnar, ef hún vildi. Þau eru: kærleikur, viska, hugrekki, hófsemd, réttlæti, fjölskyldan, ábyrgð, frelsi, heiðarleiki, traust, virðing, réttlæti, lýðræði, jöfnuður, jafnrétti, sjálfbærni og mannréttindi.

Gunnar Hersveinn er höfundur bókarinnar „Þjóðgildin“ sem Skálholtsútgáfan gaf út árið 2010. Að loknu framsöguerindi Gunnars brugðust þátttakendur við orðum hans og líflegar umræður fóru fram. Margt forvitnilegt kom þar fram og fyrirlesaranum tókst greinilega að tendra neista hjá þátttakendum. Á fundinum á Héraði, sem fram fór í Kirkjuselinu í Fellabæ, var m.a. rætt um að krafan um heiðarleika, ábyrgð og réttlæti yrði að byrja hjá hverjum og einum. Þannig gæti meintur óheiðarleiki stjórnmála- eða bankamanna ekki réttlætt óheiðarleika annarra. Þá var rætt um nauðsyn þess að efla lýðræðisvitund, t.d. hjá ungu fólki, sem liti stjórnmál gjarnan neikvæðum augum. Áskorun lýðræðisins felst að dómi Gunnars Hersveins í að láta visku fjöldans spretta hæglátlega fram. Enginn getur varpað frá sér ábyrgðinni til samhjálpar og þátttöku í samfélagsumræðunni. En hin áleitna spurning að loknu hruni kann einmitt að vera sú, hvort viðhorf og verkmáti hafi breyst til hins betra í okkar samfélagi á undanförnum árum – og um leið, hvar leiðin liggi til úrbóta.

Ræktun þjóðgildanna er því verkefni sem fundarmenn og lesendur bókar Gunnars taka með sér heim, inn á vinnustaði sína og heimili, ígrundun þeirra heldur áfram og á að vera sístæð í samfélaginu.

Davíð Þór, 3/10 2011

Barna- og unglingastarf Egilsstaðakirkju

Barna- og unglingastarf Egilsstaðakirkju er nú að hefjast aftur eftir sumarið:

Sunnudagaskólinn verður að vanda á sunnudögum kl. 11-12 í kirkjunni. Rebbi refur og félagar hlakka til að hitta krakkana aftur! Byrjar 18. september.

Stjörnustund er kirkjustarf fyrir 7-9 ára börn (2.-4. bekk) – leikir, föndur, sprell, sögur o.fl. Á fimmtudögum kl. 17:00-18:30 í kirkjunni. Byrjar 8. september.

Barnakórinn æfir í kirkjunni á þriðjudögum kl. 18:15-19:15. Byrjar 27. september.

TTT er kirkjustarf fyrir 10-12 ára börn (5.-7. bekk) – bakstur, listasmiðja, leikir, helgistund o.fl. Á þriðjudögum kl. 16:00-17:30 í safnaðarheimilinu. Byrjar 6. september.

Unglingakórinn byrjar í október – NÝTT!

Bíbí – æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8., 9. og 10. bekk. Á dagskrá haustsins er m.a. árlegt biblíumaraþon og ferð á Landsmót æskulýðsfélaga á Selfossi. Á fimmtudögum kl. 20:00-21:30. Byrjar 8. september.

Davíð Þór, 2/9 2011

Haustnámskeið barnastarfs kirkjunnar

Haustnámskeið fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða í barnastarfi kirkjunnar á Austurlandi (áður Innandyra) verður haldið í Kirkjumiðstöðinni á Eiðum laugardaginn 10. september kl. 10:45-14:00.

Dagskrá námskeiðsins:
10:45 Koma á staðinn, kaffi á boðstólum
11:00 Helgistund
11:15 Fræðsla
- Það þarf heilt þorp til þess að ala upp barn – kirkjan er í þorpinu miðju
- Niðurstöður könnunar og hugmyndir presta í framhaldi af því.
- Átakið Betra barnastarf. Hvað er hægt að gera til þess að efla barnastarfið og þátttöku í því?
12:00 Hádegismatur
12:30 Fræðsla – vinnustund
- Fræðsluefni sunnudagaskólans og 6-9 ára starfsins og TTT kynnt og einnig splunkunýtt efni fyrir Krílasálma.
- Kennsla í því hvernig hægt er að breyta glærunum í barnaefninu eftir eigin höfði og búa til glærur fyrir power point.
- Vinnustund: Vandamál í starfinu og lausnamiðuð nálgun
13:50 Fararblessun og námskeiðsslit

Leiðbeinandi er Elín Elísabet Jóhannsdóttir, fræðslufulltrúi á þjónustusviði Biskupsstofu.
Skráning hjá fræðslufulltrúa Múlaprófastsdæmis og héraðspresti Austfjarðaprófastsdæmis.

Davíð Þór, 29/8 2011

Fermingarbörn á Héraði kölluð til starfa

Fermingarbörn vorsins 2012 í prestaköllunum þremur á Héraði verða kölluð til starfa við guðsþjónustu í Egilsstaðakirkju á sunnudag, 28. ágúst kl. 11:00. Um er að ræða sameiginlega guðsþjónustu safnaðanna. Sóknarprestar á Héraði þjóna fyrir altari, sr. Þorgeir Arason predikar. Organisti er Drífa Sigurðardóttir. Eftir guðsþjónustuna verður kynningarfundur um fermingarfræðsluna í vetur og skráning í fræðsluna fer fram.

Sama dag verður guðsþjónusta í Kirkjubæjarkirkju kl. 14. Prestur er sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir, organisti Magnús Magnússon, kirkjukórinn syngur. Að messu lokinni verður árleg kaffisala Kvenfélagsins í Tungubúð.

Davíð Þór, 25/8 2011

Útimessa í Valþjófsstaðarprestakalli

Hin árlega útimessa í Valþjófsstaðarprestakalli verður að þessu sinni í landi Skeggjastaða í Fellum.

Til þess að komast að messustað er ekið eftir Upphéraðsveggi 931, og farið um grænt hlið merkt Skeggjastaðir. Leiðin þaðan er fær öllum jepplingum og 4×4 bílum og verður vel merkt frá afleggjaranum.

Messugestir sem ekki treysta bílum sínum fá aðstoð til að komast á messustað.

Sóknarpresturinn, Lára G. Oddsdóttir prédikar og þjónar við messuna. Gylfi Björnsson

spilar á harmónikku undir sálmasöng. Ólöf Magna Guðmundsdóttir lýsir staðháttum og því sem fyrir augu ber.

Messugestum er bent á að koma hlýlega klæddir til messunnar og taka með sér nesti svo hægt verði að sameinast í messukaffi að loknu helgihaldi.

Allir eru velkomnir.

Davíð Þór, 5/8 2011

Tónlistarstund með Kór Egilsstaðakirkju 23. júní

Kór Egilsstaðakirkju ásamt félögum úr Kór Vallaness og Þingmúla söng við fyrstu tónlistarstund sumarsins sl. fimmtudagskvöld. Við píanóið situr stjórnandinn, Torvald Gjerde. Flautuleikarinn heitir Eygló Daníelsdóttir. Myndina tók Ingólfur Arnarson. Nánar um tónlistarstundirnar hér.

Davíð Þór, 28/6 2011

Myndir frá skátamessu í Egilsstaðakirkju 17. júní

Skátar stóðu heiðursvörð við kirkju fyrir guðsþjónustuna

Gengið inn í kirkjuna

Kór Egilsstaðakirkju söng við guðsþjónustuna, sem fjölmenni var viðstatt

Tveir ungir skátar, Katrín og Njörður, voru ljósberar

Fyrir predikun var skipt um fánabera með viðhöfn

Sönghópur skátanna söng “Tendraðu lítið skátaljós”

Davíð Þór, 27/6 2011

Þjóðhátíðardagurinn, 17. júní

Föstudagurinn 17. júní er þjóðhátíðardagurinn. Ritningarlestra og bænir dagsins má finna hér. Helgihald í Múlaprófastsdæmi þennan dag verður sem hér segir:

Hofskirkja í Vopnafirði: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11:00.
Egilsstaðakirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 13:30, skátar taka virkan þátt.
Eiðakirkja: Hátíðarmessa kl. 14:00 – ferming.
Skeggjastaðakirkja: Hátíðarmessa kl. 14:00 – ferming.
Valþjófsstaðarkirkja: Hátíðarmessa kl. 14:00 – ferming.

Davíð Þór, 15/6 2011

Sjómannadagsmessa á Borgarfirði – myndir

Í tilefni sjómannadagsins var messað við smábátahöfnina á Borgarfirði eystra.

Davíð Þór, 8/6 2011

 

Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS