Austurlandsprófastsdæmi

 

Safnaðarstarf Eskifjarðarkirkju

Velferðarsjóður

Eins og áður er starfandi velferðarsjóður sem kirkjan stendur að ásamt Rauðakrossinum, Kaþólsku kirkjunni,  félagsþjónustu Fjarðarbyggðar og fleiri aðilum.

Um leið og þakkað er fyrir mikilsverð framlög í sjóðinn sem fleytt hefur mörgum yfir erfiðan fjárhagslegan hjalla, þakkar kirkjan frábært samstarf og einkum þátt Sigríðar Herdísar Pálsdóttur, sem leitt hefur þetta góða starf.

Velferðarsjóðurinn sem hefur komið mörgum til góða  er með kennitöluna.: 520169-4079 og reikningsnúmar: 0569-14-400458

Barna- og unglingastarf

TTT-starfið hefur legið niðri í vetur og auglýst eftir áhugasömum aðilum til að taka það að sér.

 

Æskulýðsfélagið Sugarbabes er byrjað aftur á nýjum tíma á nýja árinu og hittist nú annað hvort fimmtudagskvöld kl. 20:30-21:30 í safnaðarsalnum. Næsti fundur er 24. janúar og að sjálfsögðu er stefnt á þátttöku í æskulýðsmótinu í febrúar. Sugarbabes er opið unglingum í 8.-10. bekk og eldri. Leiðtogar eru Rakel Kemp og Þorgeir Arason.

 

Æskulýðsmót á Reyðarfirði/Eskifirði

Helgina 8.-10. febrúar nk. verður haldið kirkjulegt æskulýðsmót á Reyðarfirði. Þetta er fimmta árið í röð sem slíkt landshlutamót er haldið, ætlað unglingum í 8.-10. bekk og eldri, sem taka þátt í æskulýðsstarfi kirkjunnar á Norður- og Austurlandi. Gert er ráð fyrir yfir 100 þátttakendum.

 

Yfirskrift mótsins að þessu sinni er “Samfélag í trú og gleði” og í fræðslu og helgihaldi á mótinu verður unnið með orð Davíðssálma: “Ég varð glaður er menn sögðu við mig: Göngum í hús Drottins” (Sl. 122.1).

Á dagskrá er m.a. hópastarf, hæfileikakeppni, fræðsla, kvöldvökur, helgistundir og æskulýðsmessa í Eskifjarðarkirkju kl. 13:30 á sunnudeginum, og verður hún öllum opin.

Árlegt sunnudagaskólamót verður haldið sunnudaginn 7. apríl í Eskifjarðarkirkju og er fjörug og gefandi uppskeruhátíð barna og starfsmanna sunnudagaskólana. Í ljósi sameiningar prófastsdæmanna má búast við enn stærra móti í ár en verið hefur.

 

Sunnudagaskólinn

Sunnudagaskólinn er öflugur og góður stuðningur við skírnarfræðslu heimilanna. Foreldrar eru hvattir til þess fylgja börnum sínum í kirkjuna eiga með þeim gefandi samfélag.

Leiðbeinendur eru þær Benna, Eygerður, Rakel  og Þóra Jóna. Fermingarbörnin hjálpa til og vonandi sem flestir foreldrar.

Stefnt er að því að fara í ferðalag og heimsækja sunnudagaskólann á Norðfirði þann 17. mars nk.

 Börn, sem verða 5 ára

á árinu verður boðið ásamt foreldrum sínum til guðsþjónustu þann 24. febrúar nk. Fermingarbörn munu að því tilefni börnunum bjóða kirkjugestum upp á veitingar að messu lokinni.

Börn sem verða fimm ára á þessu ári: 

Ásdís Olsen Eðvaldsdóttir, Birkir Logi Steinþórsson, Björn Andri Ríkarðsson, Davíð Orri Valgeirsson, Einar Úlfur Beck Sverrisson, Ísak Þór Guðlaugsson, Kolka Dögg Ómarsdóttir, Ólafía Danuta Bergsdóttir og Óskar Alfreð Beck Sverrisson.

Kórastarf

Kór kirkjunnar er með reglubundnar æfingar á miðvikudögum kl. 18. Þar syngur góður kjarni fólks sem ber upp þýðingarmikla þjónustu í þágu sóknarinnar. Nokkur endurnýjun hefur átt sér stað  í kórnum á haustmánuðum og tækifæri fyrir þá sem vildu spreyta sig að láta ekki það happ úr hendi sleppa

Barnakórinn, – verður eins og í haust starfræktur á vormisseri undir stjórn sóknarprests og organista og verða æfingar í kirkjunni  þriðjudaga kl 16:30.

 

     

    Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS