Austurlandsprófastsdæmi

 

Safnaðarstarf

Þær upplýsingar sem hér birtast eiga við um vetrarstarf safnaðanna í Austurlandsprófastsdæmi (september-apríl), nema annað sé tekið fram.

Bakkagerðiskirkja

Kirkjuskóli u.þ.b. annan hvorn mánudag kl. 14:00.

Egilsstaðakirkja

Sunnudagaskóli á sunnudögum kl. 11 í kirkjunni.

Stjörnustund fyrir börn í 2.-4. bekk grunnskóla (7-9 ára) á fimmtudögum kl. 17:00-18:30, í kirkjunni.

TTT-starf fyrir börn í 5.-7. bekk grunnskóla (10-12 ára) í safnaðarheimilinu við Hörgsás 4, á þriðjudögum kl. 16:00-17:30.

BÍBÍ – æskulýðsfélag kirkjunnar á Héraði, er unglingastarf fyrir 8.-10. bekk grunnskóla (13-15 ára), á fimmtudögum kl. 20:00-21:30, í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju við Hörgsás 4. Bloggsíða BÍBÍ.

Foreldramorgnar á mánudags- og miðvikudagsmorgnum kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimilinu við Hörgsás 4, árið um kring.

Kyrrðarstundir í litlu kapellunni í safnaðarheimilinu við Hörgsás 4, á mánudögum kl. 18:00, árið um kring.

Eskifjarðarkirkja

Sunnudagaskóli annan hvorn sunnudag kl. 10:30 í kirkjunni.

TTT fyrir börn í 5.-7. bekk grunnskóla (10-12 ára) á fimmtudögum kl. 17:30.

Kirkjuselið í Fellabæ

Kirkjuskóli á laugardögum kl. 11 (í október, nóvember, febrúar og mars)

Leiklistarklúbbur TTT á mánudögum kl. 16:15-17:30.

Opið hús á miðvikudögum kl. 16-18. Þar er lesið, spjallað, sungið, prjónað, heklað og alltaf kaffi og meðlæti.

Reyðarfjarðarkirkja

Sunnudagaskóli annan hvorn sunnudag kl. 10:30.

TTT fyrir börn í 5.-7. bekk grunnskóla (10-12 ára) á miðvikudögum kl. 17:30.

Seyðisfjarðarkirkja

Kirkjuskóli fyrir yngri börn, á þriðjudögum kl. 15:15.

TTT fyrir börn í 5.-7. bekk grunnskóla (10-12 ára) á þriðjudögum kl. 19:30-20:30.

Vopnafjarðarkirkja

TTT fyrir börn í 5.-7. bekk grunnskóla (10-12 ára) á þriðjudögum kl. 14-15.

Unglingastarf fyrir 8.-10. bekk á þriðjudögum kl. 20-21:30.

Foreldramorgnar á þriðjudögum kl. 10-12.

 

Austurlandsprófastsdæmi, sr. Davíð Baldursson, Hátúni 13, 735 Eskifirði. · Kerfi RSS