Skýrsla um leikjanámskeið Hofsprestakalls 2010
Dagana 16.-20. ágúst, 2010, var haldið leikjanámskeið fyrir börn fædd 2000-2004 á vegum Hofs- og Vopnafjarðarsókna í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju og var haldið frá 9:00-12:15, en foreldrum var boðið upp á gæslu fyrir börnin frá kl. 8:00-9:00. Dagsetning var ákveðin m.t.t. þess að leikskólinn var byrjaður aftur eftir sumarlokun, vika var til skólasetningar og margir foreldrar komnir til vinnu aftur eftir sumarfrí.
Undirbúningur
Undirbúningur námskeiðsins hófst um miðjan maí þegar sótt var um styrk til Vopnafjarðarhrepps, en ljóst var að þátttökugjöld myndu ekki standa undir kostnaði. Um miðjan júlí fékkst 60.000.- kr. styrkur frá Vopnafjarðarhrepp og Kristín Jónsdóttir var ráðin sem leiðbeinandi ásamt sóknarpresti. Til aðstoðar voru þær Glódís Ingólfsdóttir og Matthildur Ósk Óskarsdóttir ráðnar, en þær eru á sextánda ári og hafa tekið þátt í leiðtogaefnisþjálfun kirkjunnar. Í byrjun ágústmánaðar var send út auglýsing og þar kom fram að einungis væri pláss fyrir 24 börn, en í árgöngunum eru yfir 40 börn. Ljóst var að aldrei yrði 100% þátttaka og miðað við fjölda starfsmanna og stærð húsnæðisins var ekki hægt að hafa stærri hóp að þessu sinni.
Framlag sóknanna var aðstaðan í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju og efniskostnaður. Einnig buðu sóknirnar börnunum upp á djús í nestistíma og starf sóknarprestsins á námskeiðinu var hluta af hans starfi. Þátttökugjald var 3.500.- kr. og veittur var 500 kr. afsláttur fyrir hvert systkini.
Framkvæmdin
Námskeiðið sóttu 20 börn á aldrinum 6-10 ára. Lagt var upp með fjölbreytta dagskrá og þemað var gullna reglan. Hver dagur hófst með samveru í kirkjunni þar sem var kveikt á kertum, bæn, sungið og sögð saga. Fram að hádegi voru tvær samverustundir og milli þeirra nestistími. Í lok hvers dags var endað með samveru í kirkjunni þar sem dagurinn var rifjaður upp, sungið, farið með bæn og Faðir vorið.
Á mánudeginum var farið í leiki og gönguferð um þorpið. Á þriðjudeginum var farið í ferðalag til Bakkafjarðar og farið var í hópleiki. Einnig í fjársjóðsleit og deginum lauk með samverustund í Skeggjastaðakirkju. Á miðvikudaginn var ratleikur og föndur, en börnin bjuggu til óróa af fjölskyldunni sinni. Á fimmtudeginum var haldið áfram með föndrið og í nestistímanum var börnunum boðið upp á kakó í Kaupvangskaffi. Þá var farið í leiki þar sem reyndi á leiklistarhæfileika barnanna. Á föstudeginum voru haldnir fáránleikar, en þar var keppt í margvíslegum greinum svo sem blýantakasti, hoppa afturábak, tuskukasti ofl. Þá var lokastund námskeiðsins undirbúin, en börnin æfðu söng og helgileiki og lögðu síðustu hönd á föndurvinnuna.
Á lokasamveruna var öllum foreldrum barnanna boðið. Stundin hófst með að allir gæddu sér á pylsum og djús og síðan var farið í kirkjuna þar sem börnin komu fram í söng og sýndu helgileikina um miskunnsama Samverjann og Daníel í ljónagryfjunni. Að lokum fengu öll börnin viðurkenningu fyrir þátttökuna á námskeiðinu.
Mat
Framkvæmd námskeiðsins tókst vel í alla staði. Börnin voru jákvæð, áhugsöm og tóku virkan þátt. Nokkur munur var á þroska og aldri elstu og yngstu barnanna og ljóst er að það þarf að virkja eldri börnin til að styðja hin yngri. Þá var veðrið ekki gott og setti nokkuð strik í reikninginn. Þó var hægt að bjóða upp á útiveru alla dagana, en ýmsa dagskrá varð að hafa innandyra svo sem dagskrá föstu-dagsins sem var í íþróttahúsið. Þá þarf að gera ráð fyrir meiri tíma í dagskrá fyrir frágang og tiltekt. Allar tímasetningar stóðust og allir liðir dagskrárinnar gengu upp eins og það var undirbúið. Það er einkum að þakka því góða starfsfólki sem var á námskeiðinu sem lagði sig fram af áhuga og dugnaði. Leiðtogaefnin, Glódís og Matthildur, stóðu sig mjög vel – voru mjög áhugasamar og náðu mjög vel til barnanna.
Hvað varðar leikjanámskeið almennt á Vopnafirði þá má hafa í huga hvernig virkja megi fleiri aðila innan sóknanna til að koma að námskeiðinu og efla þannig upplifun barnanna. Möguleikarnir eru fjölmargir hvað það varðar og með auknu samstarfi aðila innan sveitarfélagsins sem vinna með börnum má auka fjölbreytni í afþreyingu fyrir börn yfir sumartímann og þekkingu þeirra og þannig efla sjálfsmynd baranna og samfélag þeirra.
Þetta var í fyrsta skiptið sem leikjanámskeið var haldið á vegum sóknanna á Vopnafirði og það var dýrmætt tækifæri fyrir kirkjuna að fá að eiga samleið með börnunum á þessum tíma og leyfa þeim að kynnast fjölbreyttu starfi kirkjunnar, taka þátt í helgihaldi og bæn og upplifa trúna á hinn krossfesta og upprisna Drottinn Jesú Krist og frelsara heimsins saman og með hvert öðru.
Stefán Már Gunnlaugsson
sóknarprestur Hofsprestakalls
Hof, 26. ágúst, 2010