Tónlistarstarf
Fjölbreytt tónlistarstarf fer fram í söfnuðum Austurlandsprófastsdæmis undir stjórn metnaðarfullra organista og kórstjóra. Kirkjukórar starfa í hverju prestakalli og víða starfa einnig aðrir kórar tengdir kirkjunum, t.d. skipaðir börnum og unglingum.
Undanfarin sumur hefur organisti Vallanesprestakalls, Torvald Gjerde, staðið fyrir tónlistarstundum í júní og júlí í Egilsstaðakirkju og Vallaneskirkju, og verður svo einnig í ár. Tónlistarstundirnir hafa notið sívaxandi vinsælda ár frá ári, bæði meðal ferðafólks og heimamanna. Torvald Gjerde hlaut á þjóðhátíðardaginn 2011 heiðursviðurkenningu Rótarýklúbbs Héraðsbúa fyrir störf sín í þágu samfélagsins á Héraði.
Um er að ræða vandaða einsöngs-, kór- og orgeltónleika með fjölbreyttri efnisskrá. Hver tónlistarstund hefst kl. 20 og stendur í um það bil klukkutíma. Tónlistarstundirnar njóta stuðnings Menningarráðs Austurlands. Aðgangseyrir á hverja tónleika er 1.000 kr. (aðeins reiðufé).
Yfirlit yfir flytjendur sumarið 2011 er sem hér segir:
Fimmtudagurinn 23. júní í Egilsstaðakirkju:
Kór Egilsstaðakirkju, Kór Vallaness og Þingmúla.
Stjórnandi: Torvald Gjerde.
Sunnudagurinn 3. júlí í Egilsstaðakirkju:
Hlín Pétursdóttir Behrens, sópran
Nanna María Cortes, sópran
Krystina Cortes, píanó
Fimmtudagurinn 7. júlí í Egilsstaðakirkju:
Inga Rós Ingólfsdóttir, selló
Hörður Áskelsson, orgel
Sunnudagurinn 10. júlí í Vallaneskirkju:
Margrét Lára Þórarinsdóttir, mezzósópran
Pétur Örn Þórarinsson, baritón
Torvald Gjerde, harmoníum.
Þriðjudagurinn 12. júlí í Vallaneskirkju:
Erla Dóra Vogler, mezzósópran
Torvald Gjerde, harmoníum
Einnig í röðinni – nánar auglýst síðar:
Hallveig, Hildigunnur, Ólafur og Þorbjörn Rúnarsbörn, söngur
Hrönn Þráinsdóttir, píanó