Alþjóðleg samkirkjuleg bænavika 2010

baenateningur.jpg

 Alþjóðleg samkirkjuleg bænavika fyrir einingu kristinna manna verður haldin hér á landi dagana 17. – 24. janúar 2010. Um heim allan sameinast kristið fólk í bæn fyrir einingu þessa daga og lesa texta og bænir sem útbúnir eru sameiginlega í  af fulltrúum ólíkra kirkjudeilda í einhverju aðildarlanda Alkirkjuráðsins og sendir út af Alkirkjuráðinu og Kaþólsku kirkjunni. Í þetta sinn kemur efni bænavikunnar frá Edinborg í minningu þess að 100 ár eru liðin frá stóru kristniboðsþingi sem þar var haldið árið 1910 og er talið marka upphaf samkirkjulegu hreyfingarinnar.

Bænavikan hefur verið haldin hérlendis frá árinu 1968 og er skipulögð af Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga. Í þeirri nefnd eiga nú sæti fulltrúar Aðventkirkjunnar, Hjálpræðishersins, Hvítasunnumanna, Íslensku Kristskirkjunnar, Kaþólsku kirkjunnar, Óháða safnaðarins, Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, Vegarins og Þjóðkirkjunnar. Kröftugur samkirkjulegur hópur hefur undanfarið ár undirbúið dagskrá bænavikunnar á Akureyri.

 

Deila með öðrum: Facebook Twitter