Lát það nú eftir. Þannig ber okkur að fullnægja öllu réttlæti (Matt. 3.15)
Kynning á þema
Í dag einbeitum við okkur að þýðingu þess að bíða þolinmóð eftir Drottni. Þrautseigja og þolinmæði eru nauðsynleg til að koma breytingum í framkvæmd. Bæn til Guðs um einhverja breytingu er um leið verk trúar og trausts á fyrirheitum hans. Slík bið eftir Drottni er nauðsynleg öllum sem biðja fyrir einingu kirkjunnar þessa viku. Allt samkirkjulegt starf þarfnast tíma, gagnkvæmrar athygli og sameiginlegra aðgerða. Við erum kölluð til að starfa saman í því verki Heilags anda að sameina kristið fólk.
Biblíulestrar
1 Sam 1:1-20 Hanna treysti Guði og beið þolinmóð
Sálm. 40 Að bíða þolinmóð eftir Drottni
Heb. 11:32-34 Fyrir trú unnu þeir sigur á konungsríkjum, iðkuðu réttlæti.
Matt. 3:13-17 Lát það nú eftir. Þannig ber okkur að fullnægja öllu réttlæti
Bæn
Trúfasti Guð, þú ert trúr orði þínu alla tíð. Mættum við, eins og Jesús, hafa biðlund og traust til trúfastrar elsku þinnar. Kenndu okkur með þínum Heilaga anda, svo að við vinnum ekki gegn starfi þínu með fljótfærnislegum ákvörðunum heldur greina visku þína og kærleika í öllum hlutum. Þú sem lifir og ríkir um aldir og að eilífu. Amen.
Til umhugsunar:
1. Í hvaða aðstæðum lífs okkar ættum við sérstaklega að treysta fyrirheitum Guðs?
2. Hvað þættir í lífi og starfi kirkjunnar eru sérstaklega viðkvæmir fyrir fljótfærnislegum ákvörðunum?
3. Í hvaða aðstæðum ætti kristið fólk að bíða og hvenær ætti það að starfa saman?