Kristur leið fyrir okkur (1. Pét. 2:21)
Kynning á þema
Í dag erum við hvött til að íhuga þjáningu Krists. Fylgja Kristi sem hinum líðandi þjóni. Kristið fólk er kallað til að standa með þeim sem líða. Því nær sem við færumst krossi Krists, því nær færumst við hvert öðru.
Biblíulestrar
Jes. 53:3-11 Harmkvælamaður, kunnur þjáningum
Sálm. 22: 12-24 Hann fyrirleit ekki þjáningar hinna þjáðu
1. Pét. 2:21-25 Kristur leið fyrir okkur
Lúk. 24:25-27 Átti ekki Kristur að líða þetta?
Bæn
Guð huggunar, þú hefur breytt smán krossins í sigurmerki. Gefðu að við megum sameinast umhverfis kross sonar þíns til að vegsama hann fyrir þá náð sem veitt er fyrir þjáningar hans. Megi Heilagur andi opna augu okkar og hjörtu svo að við mættum hjálpa þeim sem þjást að finna til nærveru þinnar. Þú, sem lifir og ríkir um aldir og að eilífu. Amen.
Til umhugsunar:
1. Hvernig getur trú okkar hjálpað okkur að bregðast við langvarandi þjáningum?
2. Hvaða þáttum mannlegrar þjáningar er gert lítið úr og hafnað í dag?
3. Hvernig getur kristið fólk borið sameiginlegt vitni um mátt krossins?