Sigra þú illt með góðu (Róm. 12:21)
Kynning á þema
Í dag köfum við dýpra í baráttuna gegn illu. Sigur Krists er sigur yfir öllu því er skemmir sköpun Guðs og sundrar okkur. Í Jesú erum við kölluð til að deila þessu nýja lífi hvert með öðru, berjast með honum gegn því sem er rangt í heiminum, með auknu sjálfstrausti og fögnuði yfir því góða. Sundruð höfum við ekki nægan styrk til að sigra hið illa á okkar tímum.
Biblíulestrar
2 Mós. 23:1-9 Fylgið ekki meirihlutanum til illra verka.
Sálm. 1 Sæl eru þau sem hafa yndi af lögmáli Drottins
Róm. 12:17-2 Sigra illt með góðu
Matt. 4:1-11 Drottinn, Guð þinn, skaltu tilbiðja og þjóna honum einum.
Bæn
Drottinn Jesús Kristur, við þökkum þér fyrir sigur þinn yfir illsku og sundrungu. Við lofum þig fyrir fórn þína og upprisu sem sigrar dauðann. Hjálpa okkur í okkar daglega stríði við mótlæti. Megi Helgur andi gefa okkur styrk og visku svo að við megum feta í fótspor þín og sigra hið illa með góðu, sundrungu með sáttargjörð. Amen.
Til umhugsunar
1. Hvar sjáum við illsku í lífi okkar?
2. Hvernig getur trú okkar á Krist hjálpað okkur að berjast gegn illskunni?
3. Hvað getum við lært af atburðum í samfélagi okkar þar sem sundrung hefur vikið fyrir sáttargjörð?