Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

22. janúar: Umbreytt fyrir frið hins upprisna Drottins

Jesús stóð mitt á meðal þeirra og sagði: Friður sé með þér (Jóh. 20:19)

Kynning á þema
Í dag fögnum við þeim friði sem hinn upprisni Drottinn veitir. Hann er hinn mikli sigurvegari yfir dauða og heimi myrkurs. Hann sameinar lærisveina sína sem voru lamaðir af ótta. Hann opnar fyrir okkur ný tækifæri til lífs og verka fyrir komandi ríki hans. Hinn upprisni Drottinn sameinar og styrkir alla sem trúa. Friður og eining eru aðalsmerki umbreytingar okkar fyrir upprisuna.

Biblíulestrar
Mal. 3:24 Hann mun sætta foreldra við börn og börn við foreldra
Sálm. 133 Hve fagurt og yndislegt það er þegar ættingjar búa saman
Ef. 2:14-20 Að sætta báða hópa við Guð í einum líkama og deyða fjandskapinn
Jóh. 20:19-23 Jesús stóð mitt á meðal þeirra og sagði: Friður sé með yður (Jóh. 20:19)

Bæn
Ástríki og miskunnsami Guð, kenn okkur þá gleði sem fylgir því að eiga hlutdeild í friði þínum. Fyll okkur með þínum heilaga anda svo að við megum rífa niður þá múra ófriðar sem skilja okkur að. Megi hinn upprisni Kristur, sem er friður okkar, hjálpa okkur að yfirvinna alla sundrungu og sameina okkur sem borgara í ríki hans. Við biðjum þess í nafni Jesú Krists. Með honum sé þér heiður og dýrð í einingu Heilags anda að eilífu. Amen.

Til umhugsunar:
1. Hvaða birtingarmyndir ofbeldis í samfélagi okkar getum við sem kristin mætt saman?
2. Hvernig upplifum við dulinn fjandskap sem hefur áhrif á samskipti okkar sem kristnar kirkjur?
3. Hvernig getum við lært að bjóða hvert annað velkomið eins og Kristur býður okkur velkomin?